Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Agnar Már Másson skrifar 9. maí 2026 22:13 Þegar Pútín var spurður hvers vegna enga skriðdreka eða önnur þungavopn væri að sjá á hersýningunni í þetta sinn var svar hans fremur einfalt: Rússaher þyrfti á þeim að halda í Úkraínu. AP „Sigurinn verður, og hefur alltaf verið, okkar,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti er hann flutti ræðu á Rauða torginu í Moskvu þar sem hersveitir höfðu stillt sér upp að tilefni Sigurdagsins svokallaða. Hersýningin var með breyttu sniði í ár, nánar til tekið smærri, þar sem flest þungavopn Rússa eru á víglínunni í Úkraínu um þessar mundir.
Rússaher hélt hersýningu á torginu til að minnast sigursins á nasistum í Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni hinn 9. maí. Þriggja daga vopnahlé, sem stendur nú yfir frá deginum í dag til mánudags, stendur nú yfir milli Úkraínumanna og Bandaríkjamanna, eins og tilkynnt var í gær. Pútín hefur verið við völd í meira en aldarfjórðung og oft notað sigurdaginn, stærsta hátíðisdag Rússlands sem ekki tengist trú, til að sýna hernaðarmátt landsins og afla stuðnings við innrásarstríðið í Úkraínu, sem er komið á fimmta ár. Rússneskir ermenn marseruðu um rauða torgið í Moskvu í dag að tilefni Sigurdagsins, en 81 ár er liðið frá því að Sóvétmenn sigruðu nasista í seinni heimstyrjöldinni.AP Sýningin var þó með breyttu sniði í að sinni, að því er AP og BBC greina frá. Hún var raunar í smærri kantinum þar sem að þetta er sú fyrsta í nærri tvo áratugi sem þungavopn voru ekki til sýnis; engir skriðdrekar og engin flugskeyti, svo eitthvað sé nefnt. Spurður út í þetta af fréttamönnum svaraði Pútín því að hersýningin hefði ekki innihaldið þungavopn vegna þess að herinn þyrfti á þeim að halda á vígvellinum í Úkraínu. Hermenn frá Norður-Kóreu marseruðu með Pútín hafði boðið nokkrum erlendum leiðtogum á hersýninguna en auk þess tóku norðurkóreskir hermenn þátt í henni enda hafa hermenn frá Norður-Kóreu barist í þágu Rússa á víglínunni í Kúrsk-héraði Úkraínu síðasta árið. Í ræðu sinni á hersýningunni hrósaði Pútín rússneskum hermönnum sem börðust í Úkraínu og sagði að þeir stæðu frammi fyrir afli sem væri „vopnað og stutt af öllu bandalagi NATO“. Pútín ítrekaði að hermennirnir börðust fyrir „réttlátum málstað“. Hermenn frá Norður-Kóreu tóku þátt í hersýningunni í Moskvu.AP „Lykillinn að velgengni er siðferðisstyrkur okkar, hugrekki og hetjulund. Eining okkar og hæfni til að þola allt og sigrast á öllum áskorunum,“ hélt Rússlandsforsetinn áfram er hann ávarpaði rússnesku þjóðina og heiminn. Stríðinu mun brátt ljúka Fyrr í vikunni höfðu bæði Rússar og Úkraínumenn tilkynnt um tímabundið vopnahlé en misræmis gætt í dagsetningum og stríðandi fylkingar báðar sakað hvort aðra um brot á vopnahléinu, sem Úkraínumenn höfðu sagt taka gildi 6. maí, en Rússar 8. maí. Í gær, 8. maí, tilkynnti svo Donald Trump forseti Bandaríkjanna að Rússland og Úkraína hefðu fallist á beiðni sína um vopnahlé og fangaskipti upp á þúsund manns hvort tveggja. Trump sagði að hlé á bardögum gæti verið „upphafið að endalokum“ stríðsins. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hafði sagt fyrr í vikunni að Rússar óttuðust að drónar gætu „suðað yfir Rauða torginu“ þann 9. maí. Í dag, eftir að vopnahlé tók gildi, gantaðist svo Selenskí einnig með það að Rússum væri nú loksins „heimilt“ að halda sigurdagshátíðina. Talsmenn Kremlar kölluðu þennan brandara kjánalegan. Russia Victory Day Russian servicemen march as they attend the Victory Day military parade in Moscow, Saturday, May 9, 2026, during celebrations of the 81st anniversary of the Soviet Union's victory over Nazi Germany during World War II. (AP Photo/Pavel Bednyakov, Pool) Samkvæmt frétt AP sagði Pútín fréttamönnum eftir hersýninguna að Trump hefði boðist til að hafa milligöngu um vopnahlé í kjölfar þess að Rússar tilkynntu Bandaríkjunum að þeir myndu gera stórfellda flugskeytaárás á miðborg Kænugarðs ef Úkraínumenn reyndu að trufla hátíðarhöldin í dag. Hvað framgang stríðsins varðar svaraði Pútín því aðspurður að hann tryði því að átökunum myndi brátt linna. „Ég held að málinu sé að ljúka,“ sagði hann um stríðið.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira