Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson og Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifa 9. maí 2026 16:00 Eitt helsta verkefni sveitarfélaga er að móta framtíðina og skapa börnum og ungmennum traust umhverfi og tækifæri til að þroskast og mennta sig. Skólakerfið er lykilþjónusta sem styður við fjölskyldur með faglegri og traustri þjónustu í síbreytilegu samfélagi. Garðabær er öflugur skólabær og við erum stolt af skólafólkinu okkar og þeim árangri sem náðst hefur í menntamálum. Í árlegri þjónustukönnun Gallup kom til að mynda í ljós að ánægja með leikskóla er mest í Garðabæ í samanburði við önnur sveitarfélög en 87% svarenda sögðust vera ánægð með þjónustu leikskóla. Þá eru 84% íbúa ánægð með þjónustu grunnskóla, sem er mesta ánægjan á meðal stærri sveitarfélaga. Grunnskólar í fremstu röð Í grunnskólamálum í Garðabæ ríkir sterk menning um metnað, árangur og framsýni. Þá setjum við sveigjanleika og frelsi í fyrsta sæti. Í Garðabæ eru reknir átta grunnskólar, sex þeirra eru reknir af sveitarfélaginu og tveir eru sjálfstætt starfandi. Foreldrum er frjálst að innrita barnið sitt í þann grunnskóla sem þeir telja að henti barninu sínu best. Grunnskólar eru fjölbreyttir í Garðabæ og virka fyrir ólíkar þarfir barna og ungmenna. Forsenda þess að skólastarf sé í stöðugri þróun er að hafa skýra mælikvarða. Í Garðabæ er stefnan að öll börn taki þau próf sem haldin eru af Menntamálastofnun með samræmdum hætti. Við höfum einnig verið að samræma námsmat innan Garðabæjar og taka saman mælingar á námsárangri nemenda í íslensku og stærðfræði í 4., 7., og 10. bekk í Garðabæ. Þar með hefur Garðabær mjög góða og samhæfða yfirsýn yfir stöðu nemenda. Við vitum ekki til þess að önnur sveitarfélög séu komin eins langt í slíkri vinnu. Þessar mælingar sýna skýrt að nemendur í Garðabæ eru í öllum árgöngum sem mældir eru yfir landsmeðaltali í lesfimi og að þróunin undanfarin ár hafi verið jákvæð í Garðabæ þrátt fyrir að hún sé neikvæð á landsvísu. Vellíðan er forsenda árangurs Nemendum í Garðabæ líkar almennt betur í skólanum og skora þeir hærra varðandi það að tilheyra skólanum samkvæmt mælingum. Það eru margþættar aðgerðir í Garðabæ sem styðja við börn og grípa sérstaklega þau sem þurfa á því að halda. Nú er unnið eftir samskiptasáttmála Garðabæjar, sem byggir í senn á fyrirbyggjandi aðgerðum og úrræðum til að mæta aðstæðum þar sem grípa þarf inn í samskiptamál. Atferlisráðgjafar eru komnir til starfa í nokkrum skólum og nemendur á unglingastigi hafa nú aðgengi að sálfræðiþjónustu í skólunum. Kennarar eru gríðarlega mikilvægir starfsmenn og skiptir það okkur miklu máli að styðja þá vel í sínum störfum með fjölbreyttum stuðningi sérfræðinga og lausna. Í Garðabæ leggjum við mikla áherslu á að grípa sem fyrst inn í þegar þörf er á með stuðningi og leiðsögn hvort sem málið varðar námsárangur, samskipti eða líðan. Við stuðlum að því að gripið sé inn í áður en vandinn vex um of. Það þarf að veita öllum athygli og vinna sérstaklega með nemendum sem blómstra ekki í kerfinu. Uppbygging til framtíðar og öflugt þróunarstarf Við ætlum að halda áfram að styðja við og byggja upp fjölbreytta valkosti til menntunar í samstarfi við samfélagið. Nýlega undirrituðu Garðabær og Hjallastefnan samkomulag um uppbyggingu skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Markmið samkomulagsins er að stækka og efla starfsemina og skapa betri aðstæður fyrir börn og fjölskyldur í bænum. Þorláksskóli, sjálfstætt starfandi skóli fyrir einhverf börn, fer af stað í haust í samvinnu við Garðabæ og er undirbúningur hafinn við uppbyggingu nýs grunnskóla í Hnoðraholti. Í Garðabæ eru jafnframt þróunarsjóðir fyrir bæði leik- og grunnskóla. Grunnskólar geta sótt um styrki í þróunarsjóði sem úthlutar árlega 28 milljónum til fjölbreyttra verkefna innan skólanna. Áherslur þróunarsjóðs undanfarin ár hafa t.d. verið á læsi, upplýsingatækni, fjölbreytta og framsækna kennsluhætti og leiðir til að efla vellíðan. Menntadagur Garðabæjar er einnig haldinn árlega þar sem fagmenn skólakerfisins kynna þróunarverkefni sín og bærinn veitir viðurkenningar fyrir frábæran árangur í skólastarfi. Garðabær sem virkar Garðabær fer stækkandi, hér vilja fjölskyldur vera og hingað vill fólk flytja. Því er mikilvægt að hugsa til framtíðar, halda áfram að gera gott betra og tryggja öfluga þjónustu í takt við ört vaxandi sveitarfélag. Slík gæði verða ekki til af sjálfu sér. Þau byggja á samspili langtímahugsunar, metnaðar og öflugs starfsfólks, bæði í stoðþjónustu og innan skólanna sjálfra. Sú nálgun hefur skapað sérstöðu í menntamálum þar sem frelsi, sveigjanleiki og ánægja fara saman. Við viljum að lokum þakka frábæru og metnaðarfullu fagfólki í skólunum okkar í Garðabæ. Þessir fagmenn, störf þeirra og metnaður skipta sköpum í árangri og líðan barnanna okkar. Þeirra starf er ómetanlegt og hefur mótandi áhrif. Sýnum kennurum og skólastarfi fulla virðingu. Það er ánægjulegt að sjá bæinn stækka. Enn ánægjulegra er að sjá að þjónustan skilar sér, að íbúar séu ánægðir og að aðrir vilji koma hingað. Skólarnir eru aðeins eitt af mörgum dæmum sem sýna að Garðabær virkar. Almar Guðmundsson - oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður skólanefndar Garðabæjar og skipar 22. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Almar Guðmundsson Sigríður Hulda Jónsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar