Oddvitaáskorunin: „Eru kótilettur í raspi í matinn?” Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. maí 2026 09:02 Fjalldís, Ásrún, Jafet og Stefnir fyrir utan heimili sitt, Gamla Sýslumannshúsið Jessica Auer Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir er oddviti VG og óháðra í Múlaþingi. Ég heiti Ásrún Mjöll og leiði lista VG og óháðra í Múlaþingi. Ég bý á Seyðisfirði með eiginmanni og tveim börnum í 120 ára gömlu húsi. Ég er húsasmiður og sjúkraflutningakona, með B.A. gráðu í mannfræði. Ég hef áhuga á útivist og hreyfingu, finnst frábært að fara út að hlaupa eða í fjallgöngu og hef stundað klifur í 18 ár. Mér finnst mjög gaman að elda góðann mat frá grunni, rækta grænmeti, smíða og ferðast.Ég er sveitastjórnarfulltrúi VG í Múlaþingi og sit í umhverfis- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði í Múlaþingi. Jafnframt er ég stjórnarformaður LungA skólans. Ég leiddist út í sveitarstjórnarmál vegna áhuga á náttúruvernd, en ég hef ílengst því mér finnast verkefnin krefjandi og skemmtileg og það gefandi að vera partur af samfélagi eins og hér í Múlaþingi og finna að hver og einn getur haft mikil og jákvæð áhrif á sitt nánasta umhverfi og samferðafólk. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Ætli það væri ekki Reykjavík, þar á ég fjölskyldu og bakland. En ég myndi helst vilja vera á Seyðisfirði. Múlaþing - þar sem veðrið er best!“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Líklega Salka Valka eftir HKL eða Bréf til Láru eftir Þórberg. Þær eru svo ólíkar að það er erfitt að gera upp á milli. Man að ég fékk Sjálfstætt fólk í fermingargjöf og hún opnaði nýjan heim bókmennta fyrir mér, svo komu verk Þórbergs í kjölfarið.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Ég held að skynsamlegast væri að deila slíkum niðurskurði á nokkra liði og gæta þess sérstaklega að snerta ekki lögbundnar skyldur“ Klifrað í SeyðisfirðiJafet Bjarkar Björnsson Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Ég myndi líklega nýta þá fjármuni í leik- og grunnskólana og til að efla íþrótta-, tómstunda- og menningarstarf í sveitarfélaginu.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Eru kótilettur í raspi í matinn?” Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Alltaf betra að hringja.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Ég er áhugasöm um að kanna heimgreiðslufyrirkomulag til þeirra foreldra sem hafa áhuga á því. Á því eru eðlilega margar hliðar og skiptar skoðanir.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Það væri gott að verða samstundis sérfræðingur í viðhaldi gamalla timburhúsa“ Heima í stofu.Guðný Lára Guðrúnardóttir Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Ég myndi gjarnan vilja koma í veg fyrir fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir í sveitarfélaginu fyrir utan stækkun Lagarfossvirkjunar.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Í að greina og hjálpa mér að flokka niðurstöður samvinnuhóps um skjá- og samfélagsmiðlanotkun barna á Seyðisfirði.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Við erum opin fyrir allri góðri samvinnu, enda vilja öll framboð veg sveitarfélagsins sem mestan. VG og óháð eiga þó mismikla samleið með hugmyndafræði annarra framboða, en við leggjum bara áherslu á okkar góðu stefnumál.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Bestu mistök sem ég hef gert var að gleyma að stilla fasteignaleitina á höfuðborgarsvæðið. Vegna þess fundum við maðurinn minn þetta dásamlega hús á Seyðisfirði, og hér erum við.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Í Múlaþingi er margt dásamlegt. Til dæmis nálægðin við náttúru, náungakærleikur íbúa og fjölbreytileiki byggðakjarnanna. Svo er auðvitað besta veður landsins hér, óháð árstíðum.“ Gengið heim úr Skálanesi með Fjalldísi á bakinu.Jafet Bjarkar Björnsson Hvað borðar þú í morgunmat? „Ég borða alltaf það sama með börnunum, hafragraut úr mjólk með nokkrum rúsínum. Svo tek ég lýsi og drekk vatn. Síðan kemur kaffibolli.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Ég myndi ekki orða það þannig að það fari í taugarnar á mér en ég myndi vilja efla náttúruvernd til muna og auka vægi náttúruverndarnefnda.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Mér finnst raunhæft að auka náttúruvernd svo um munar, bæta lýðheilsu íbúa með aukinni áherslu á hreyfingu og heilnæmt umhverfi og að auka jöfnuð, t.d. varðandi íþrótta- og tómstundaiðkun barna, sérstaklega m.t.t. fatlaðra barna.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Shine On You Crazy Diamond (1-5) með Pink Floyd“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Ég tel það hafa verið stór mistök þegar meirihlutinn stóð ekki með miklum meirihluta íbúa Seyðisfjarðar í andstöðu gegn fiskeldi þar. Svo hefur skammtímahugsun gagnvart stóriðjuframkvæmdum átt sér stað, t.d. þegar meirihlutinn beitti sér fyrir því að Hamarsvirkjun færi úr verndarflokki rammaáætlunar.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Ég er eiginlega alltaf bara kölluð Ásrún eða Ásrún Mjöll, en flest verkfærin mín eru merkt Ásrún Power.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Ég legg mig fram um að standa við öll gefin loforð.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstri græn Múlaþing Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira