Excel sér ekki barnið sem bíður Anna Kristín Jensdóttir skrifar 8. maí 2026 13:40 Það er auðvelt að lofa hagræðingu, en erfiðara að svara því hver missir þjónustuna. Sjálfstæðisflokkurinn mætir enn einu sinni til leiks með sömu gömlu setninguna, ,,Við ætlum að hagræða". Það hljómar saklaust. Jafnvel skynsamlega. Hver vill ekki fara vel með almannafé? En þegar betur er að gáð vantar alltaf það mikilvægasta, svarið við því hver á að borga reikninginn. Hvaða þjónusta verður skert? Hvaða barn bíður lengur eftir stuðningi? Hvaða fatlaði einstaklingur fær ekki þá þjónustu sem hann á rétt á? Hvaða fjölskylda verður skilin eftir? Sjálfstæðismenn tala um yfirbyggingu, rekstur og sparnað eins og velferðarþjónusta sé einhver aukahlutur í samfélaginu. En velferð er ekki yfirbygging. Hún er grunnstoð. Í öðrum bæjarfélgöum þar sem Sjálfstæðismenn búast við sigri heyrist talað um að byrja á hagræðingu í stjórnsýslu og rekstri. Í Reykjavík er tónninn sá sami, minna bákn, lægri gjöld, meiri sparnaður og auðvitað fleiri bílastæði. En Reykjavík þarf ekki stjórnmál sem mæla lífsgæði í fjölda bílastæða. Reykjavík þarf stjórnmál sem spyrja hvort börn fái þjónustu, hvort fatlað fólk geti lifað sjálfstæðu lífi, hvort eldra fólk búi við öryggi og hvort starfsfólk velferðarkerfisins hafi svigrúm til að sinna vinnunni sinni. Það er munurinn á hagræðingastjórn og mannlegri borg. Auðvitað á að fara vel með almannafé. Það á að einfalda kerfi, bæta innkaup, nýta tækni og tryggja að hver króna skili árangri. Þar eiga ábyrgur rekstur og öflug velferð að fara saman. En skilvirkni má aldrei verða dulnefni yfir niðurskurð. Þegar sparnaður bitnar á viðkvæmustu hópunum er hann ekki ábyrgð. Hann er tilfærsla á kostnaði , frá borginni yfir á fjölskyldur, aðstandendur og einstaklinga sem hafa minnst svigrúm til að bera hann. Það er gamla hægri leiðin. Hún lítur vel út í Excel-skjali en illa út í lífi fólks. Því léleg velferð er dýr. Hún kostar í kulnun starfsfólks, lengri biðlista, brotnu trausti og börnum sem fá hjálp of seint. Hún er kostnaður í fólki sem þarf að berjast við kerfið í stað þess að fá stuðning frá því. Miðflokkurinn býður svo upp á enn fátæklegri útgáfu, hávaða, reiði og slagorð. ,,Á móti Borgarlínu,,. ,,Á móti mannréttindastefnu". ..Á móti breytingum". En hvað á að koma í staðinn? Þar verður fátt um svör. Reykjavík þarf ekki meiri neikvæðni. Hún þarf lausnir. Hún þarf frjálslynda og félagslega sýn þar sem fólk er frjálsara vegna þess að þjónustan virkar. Þar sem börn fá stuðning snemma. Þar sem fatlað fólk er ekki aukaatriði í stjórnmálum. Þar sem eldra fólk býr við öryggi. Þar sem húsnæði, samgöngur og velferð eru ekki kostnaðarliðir heldur fjárfesting í lífsgæðum. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn talar um sparnað eigum við alltaf að spyrja: Sparnað hjá hverjum? Hjá barninu sem bíður eftir stuðningi? Hjá fatlaða einstaklingnum sem bíður eftir þjónustu? Hjá eldra fólkinu sem þarf heimaþjónustu? Hjá starfsfólkinu sem á að hlaupa hraðar? Hjá fjölskyldunni sem hefur þegar beðið of lengi? Það er ekki framtíðarsýn að telja bílastæði á meðan fólk bíður eftir grunnþjónustu. Sparnaður er ekki stefna. Hagræðing er ekki hugsjón. Og borg er ekki fyrirtæki sem á að hámarka afgang. Borg er samfélag. Og prófsteinninn á gott samfélag er ekki hvernig það þjónar þeim sem þurfa minnst, heldur hvernig það stendur með þeim sem þurfa mest. Höfundur er fötluð kona sem hefur starfað í stjórnsýslunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar