Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 8. maí 2026 11:02 Margrét Sigrún er sviðstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands. Vísir Canvas, námsumsjónarkerfi í eigu Instructor, lá niðri í gærkvöldi vegna árása ShinyHunters, hóps netþrjóta. Kerfið er notað í fjölmörgum háskólum hér á landi. Háskóli Íslands hvetur nemendur til að ná í allt sem þurfi til að undirbúa sig fyrir lokapróf verði kerfinu lokað aftur. „
Canvas, námsumsjónarkerfið hjá okkur, hefur verið undir árásum. Í gærkvöldi brutust þeir inn með þeim afleiðingum að nokkrir nemendur hér og nemendur um allan heim fengu upp skilaboð um að þetta væri árás. Instructure, móðurfyrirtæki Canvas, brást við með því að loka kerfinu og það lá niðri í nokkra klukkutíma í gærkvöldi og fram eftir kvöldi,“ segir Margrét Sigrún Sigurðardóttir, sviðstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands, sem ræddi við Tómas Arnar, fréttamann Sýnar, nú í morgun. Forsvarsmenn Instructure segjast hafa áttað sig á því hvar bresturinn er og séu búnir að loka þeim hlut af kerfinu. „Canvas er komið upp aftur en við treystum því ekki alveg þannig að við erum að leggja upp með ákveðnar varúðarráðstafanir, hvetja nemendur og kennara til að sækja gögn með ákveðnum hætti til þess að þau séu aðgengileg og við getum klárað misserið. Því þetta er versti mögulegi tími hjá okkur í háskólum til að missa þetta námsumsjónarkerfi,“ segir Margrét. Í morgun fengu nemendur og kennarar háskólans skilaboð frá skólanum þar sem nemendur eru hvattir til að prenta út mikilvægt efni svo það sé aðgengilegt óháð Canvas. Þau eigi hins vegar að forðast að hlaða niður efni beint á eigin tölvubúnað að svo stöddu. Canvas-kerfið er ekki notað við prófatöku svo hún sér ekki fram á að þurfa aflýsa prófum vegna málsins. Lokað á kerfið kvöldið fyrir próf „Þetta er sá tími sem kvíði og streituástand er mest. Þannig að ég veit til þess að nemendur hafi verið inni í kerfinu í gær að læra fyrir próf þegar það lokaði. Það er ekki góð tilfinning og við finnum til með nemendum í þeirri aðstæðu,“ segir Margrét. Hlín Pálmarsdóttir, nemandi á fyrsta ári í enskum fræðum, var ein þeirra sem sat við lestur þegar kerfinu var lokað í gærkvöldi. „Ég var að læra og svo ætlaði ég að fara yfir námsefnið inni á Canvas og taka æfingapróf. Þá komst ég bara ekki inn og það var mjög stressandi,“ segir Hlín sem var mætt snemma upp í skóla í morgun til að halda áfram upplestrinum. „Ég er að fara í próf í dag, þetta gerðist kvöldið fyrir próf. Ég var búin að sjá fyrir mér að læra fram eftir kvöldi en þetta neyddi mig í að slaka aðeins á. Maður þarf líka að hvíla sig inni á milli.“ Hlín var að læra í gær þegar kerfinu var lokað.Vísir Hún segist þó ekki hafa miklar áhyggjur af gagnastuldinum. „Er maður ekki bara svo ómerkilegur að þetta hefur engin áhrif?“ spyr hún og hlær. Betur stödd en aðrir háskólar Umrædd gögn sem eru undir eru netföng nemenda, nöfn þeirra og skilaboð sem þau gætu hafa sent inni í kerfinu. „Svo er talað um nemendanúmer. Þau eru ekki það sem við köllum prófnúmer og eru í raun og veru í okkar kerfi í Háskóla Íslands frekar merkingarlaus. Það er helst í spjallinu þar sem gætu verið viðkvæmar upplýsingar,“ segir Margrét. Allar viðkvæmar upplýsingar, svo sem kennitölur og einkunnir nemenda, eru geymdar í öðru nemendakerfi svo þau eru ekki í undir í mögulegum gagnaleka. „Við erum búin að senda og sendum út fyrr í vikunni hvatningu til nemenda að vera á varðbergi fyrir netárásum. Þær gætu orðið meiri vegna þess að netföngin liggja þarna úti en við erum betur stödd heldur en mjög margir háskólar úti í heimi,“ segir hún. Fyrstu viðbrögð innan Háskóla Íslands voru að tryggja að hægt væri að ljúka misserinu en margir nemendur eru á leið í lokapróf á næstu dögum. „Þetta er óvissa og við verðum að læra að lifa með henni.“
Háskólar Skóla- og menntamál Netglæpir Tækni Hagsmunir stúdenta Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Sjá meira