„Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Sindri Sverrisson skrifar 8. maí 2026 08:02 Fanndís Friðrikdsóttir hafði fulla samúð með Óskari Smára og hrósaði honum fyrir að ganga ekki lengra. Samsett/Sýn Sport „Þessi hegðun er bara ekki í lagi,“ sagði Fanndís Friðriksdóttir um gæslumanninn á Akureyri sem þótti fara langt yfir strikið á leik Þórs/KA og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna í fótbolta í vikunni.
Þór/KA skoraði jöfnunarmark undir lok leiks og tryggði sér 2-2 jafntefli. Á myndbandi sem sýnt var í Bestu mörkunum á Sýn Sport Ísland í gærkvöld má sjá að umræddur gæslumaður klappaði þá ákaft, nánast ofan í Óskar Smára Haraldsson, þjálfara Stjörnunnar. „Þetta er bara algjör dónaskapur. Ekkert eðlilega dónalegt,“ sagði Fanndís en myndbandið og umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Gæslumaður fór langt yfir strikið Óskar Smári sagðist sjálfur í viðtali eftir leik ætla að senda inn kvörtun vegna málsins. „Hann fór bara yfir vel línuna og dómarinn skráði það í skýrsluna hjá sér eftir leikinn því að fjórði dómarinn gaf mér mikinn kúdus fyrir það að halda ró minni. Því það var mjög súrt að fá markið á sig en fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki, ég get sagt þér það,“ sagði Óskar í viðtalinu. Hann fékk mikla samúð sérfræðinganna í Bestu mörkunum, þeim Fanndísi og Birni Sigurbjörnssyni. „Þetta er fullorðinn manneskja. Hvernig hegðar þú þér eiginlega? Þú ferð þá bara heim og skammast þín,“ sagði Björn og Helena Ólafsdóttir, sem stýrði þættinum, tók undir: „Þú ferð ekki á andstæðinginn og klappar ofan í andlitið á honum,“ sagði Helena. Þau Björn þekkja það vel að vera á hliðarlínunni sem þjálfarar. „Maður elskar ástríðu eins og Óskar talar um. Fólk kemur og styður sitt lið. En mér finnst þetta langt út fyrir öll mörk. Ég verð að hrósa Óskari því ég hefði eflaust brugðist verr við en hann,“ sagði Björn. „Hann hafði rétt á því að bregðast öðruvísi við,“ sagði Fanndís og bætti við: „Þessi maður á bara að skammast sín,“ en þess ber að geta að gæslumaðurinn bað Óskar Smára afsökunar. „Ég þakkaði honum pent fyrir og sagði afsökunarbeiðni ekki samþykkt,“ sagði Óskar.
Besta deild kvenna Bestu mörkin Þór Akureyri KA Stjarnan Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjá meira