Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Þórarinn Þórarinsson skrifar 8. maí 2026 08:03 Það getur kostað sitt að ganga um parketgólf á pinnahælum og því skynsamlegt að faraþá varlega eða sleppa því alveg. Vísir/Getty Kærunefnd húsamála hefur gert leigusala, sem vildi ráðstafa tryggingafé til viðgerðar á parketi vegna skemmda eftir pinnahæla, að endurgreiða fyrrverandi leigjendum sínum tæpan helming tryggingarinnar með vöxtum.
Eftir tæplega þriggja ára leigutíma krafðist leigusalinn heimildar til þess að ganga að 560.000 króna tryggingu leigjendanna upp í kostnað við slípun og lökkun á parketi vegna skemmda sem hann taldi þá síðarnefndu alfarið bera ábyrgð á með því að ganga um gólf á pinnahælumParketið var talið heilt og hrörnun lítil og það sett í svokallaðan B-flokk eftir úttekt sem gerð var á íbúðinni við upphaf leigutímans, í september 2022. Leigusalinn lætur þess meðal annars getið í kröfu sinni að hann hafi í mars 2025 „tekið eftir förum á gólfi eftir hælaskó og sent móður varnaraðila tölvupóst þess efnis og beðið um að skór með pinnahæl yrðu ekki notaðir innandyra.“ Íbúðinni var skilað í ágúst það sama ár og leigusalinn tók þá myndir af gólfefnunum og fékk ástand þeirra metið með þeirri niðurstöðu að „för væru eftir pinnahæla um alla íbúð“ og áætlaður viðgerðarkostnaður næmi 535.680 krónum.Þeirri upphæð vildi leigusalinn fá að ráðstafa af tryggingu leigjendanna sem aftur á móti höfnuðu þeirri kröfu, meðal annars með vísan til þess að sá sami og gerði upphaflegu úttektina hafi verið í fríi og ekki verið kallaður til aftur. Óeðlilegt slit Þess í stað hafi leigusalinn „verið búin að ákveða að fá skoðunarmann sem hún þekki og sé starfsmaður parketverslunar, til að skoða gólfið og meta skemmdir.“ Leigjendurnir hafi einnig óskað eftir því að fá að vera viðstaddir skoðunina en óljós svör um tímasetningu hafi orðið til þess að þeim hafi í raun aldrei gefist tækifæri til þess. Leigusalinn brást við höfnuninni með því að kalla aftur til upphaflega skoðunarmanninn og hvatti leigjendurna, með eins dags fyrirvara, til þess að vera viðstaddir úttekt hans. Leigjendurnir sögðust ekki hafa tök á því og gerðu auk þess fyrirvara um að nýir leigjendur væru þá búnir að vera í íbúðinni í fimm vikur.Samkvæmt þeirri úttekt „voru lítil göt eftir pinnahæla sjáanleg um alla íbúð“ og með hliðsjón af myndum sem teknar voru við upphaf leigutímabilsins teldist slitið á gólfefni ekki eðlilegt og mælt með því að parketið yrði slípað og lakkað upp á nýtt. Ósanngjörn krafa Kærunefnd húsamála kemst að þeirri niðurstöðu að óhætt sé að „slá því föstu að för eftir pinnahæla hafi verið á parketinu eftir leigutíma varnaraðila“. Þessu til stuðnings er vísað til greinargerðar leigjendanna sem hafna því að pinnahælaförin séu „um alla íbúð“ heldur á afmörkuðum svæðum og til dæmis ekki á gólfi undir rúmum, stofusófa og öðrum húsgögnum. Þá er bent á að leigjendurnir byggi málatilbúnað sinn á því að „ósanngjarnt verði að telja að þeir greiði kostnað við lökkun og slípun á öllu gólfefninu enda væri sóknaraðili þannig að hagnast á viðgerðinni.“Einnig verði að líta til þess að um það bil fimm vikur liðu frá lokum leigutíma þar til skoðunarmaður tók íbúðina út og í millitíðinni höfðu nýir leigjendur flutt inn, „auk þess sem skoðunarmaður hafði samkvæmt gögnum málsins til samanburðar aðeins myndir sem voru teknar við upphaf leigutíma en ekki lok hans.“ Óljós ábyrgð Því verði að líta svo á að óvissa sé um umfang skemmdanna sem leigjendurnir beri ábyrgð á og að taka verði tillit til þess að leigusalinn hafi einhliða útvegað eina kostnaðarmatið sem liggur fyrir.Kærunefndin telji því hæfilegt að leigjendurnir greiði helming viðgerðarkostnaðarins samkvæmt því mati, eða 267.840 krónur, sem fallist er á að leigusalinn ráðstafi af tryggingarfénu. Að því virtu beri leigusalanum að skila eftirstöðvum 560.000 króna tryggingarinnar, eða 227.090 krónum með vöxtum.
Leigumarkaður Húsnæðismál Stjórnsýsla Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira