Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. maí 2026 18:21 Háskólinn í Reykjavík notar Canvas. Vísir/Vilhelm Hluti gagna nemenda í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík í Canvas-námsumsjónarkerfinu gæti verið í höndum netþrjóta eftir að ráðist var á gagnagrunn Canvas. Gögnin kynnu að innihalda nöfn og netföng nemendanna. „
Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur óviðkomandi aðili komist ólöglega yfir hluta gagna innan Canvas-kerfisins sem tengjast notendum í fjölda háskóla um allan heim, þar á meðal Háskóla Íslands. Gögnin kunna að innihalda netföng og skilaboð milli notenda Canvas,“ segir í tölvupósti frá Háskóla Íslands til nemenda þeirra. Í gær fengu nemendur Háskólans í Reykjavík tölvupóst frá skólanum sem segir að gögnin þeirra gætu mögulega einnig verið undir. „Samkvæmt upplýsingum frá Instructure er þegar búið að setja inn öryggisuppfærslur í kerfið hjá fyrirtækinu, uppfæra lykilorð og efla eftirlit og öryggismál,“ segir í tölvupósti HR til nemenda. Hollenski miðillinn RTL greinir frá því að hópur tölvuþrjóta sem kallar sig ShinyHunters hafi ráðist á gagnagrunn Canvas og stolið þaðan nöfnum, netföngum, númer á nemendaskírteinum og skilaboðum sem nemendurnir hafa sent inni á forritinu. Vísað er í tilkynningu frá ShinyHunters þar sem þau segja að vilji skólarnir fá gögnin aftur þurfi þeir að hafa samband fyrir 7. maí. Annars verði gögnin birt á huldunetinu. „Ef skólarnir vilja koma í veg fyrir að gögnin verði birt opinberlega, vinsamlegast hafið samband til að ná samkomulagi,“ hefur miðillinn eftir RTL.
Háskólar Netglæpir Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira