Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. maí 2026 09:01 Ari svaraði krefjandi spurningum og borðaði eldsterka kjúklingavængi. Ari Edwald segir að umtalað mál úr fortíð hans hafi ekki þvælst fyrir honum í kosningabaráttunni fyrir Miðflokkinn í Reykjavík, hann einblíni á það sem sé fyrir framan hann. Ari segir velgengni sína á Tik-Tok að þakka ungum mönnum og segist nota orð við þá sem hann skilji ekki sjálfur.
Ari ræddi málin í nýjasta þætti skemmtiþáttarins Af vængjum fram, þangað sem frambjóðendur til borgarstjórnar mæta og gæða sér á eldsterkum kjúklingavængjum milli þess sem þeir svara krefjandi spurningum oft á léttari nótum. Þangað mætti hann ásamt Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins í Reykjavík. Hefur ekki dvalið við málið Í þættinum berst talið að því hvernig sé að vera opinber persóna, verða oddviti þegar gömul mál úr fortíðinni eru rifjuð upp. Ari hefur komið víða við, verið forstjóri 365 miðla og Mjólkursamsölunnar svo fátt eitt sé nefnt. 2022 var honum vikið frá störfum sem forstjóri Íseyjar útflutnings eftir ásakanir í máli sem kennt var við Vitalíu Lazarev. Rannsókn málsins var síðar felld niður. Ari segir það mál ekkert hafa verið rifjað upp í kosningabaráttunni nú utan eins viðtals í febrúar. „Og ég gaf hreinskilin svör um það og hvernig því er lokið. Ég leitaði sjálfur til yfirvalda á sínum tíma með það mál, það fékk sinn farveg og lokaniðurstöðu. Síðan eru liðin þrjú ár, hvað að verða sex ár frá þessum atvikum sem þú vísar til. Ég gæti alveg rætt þau í þaula og það kæmi vel út fyrir mig að gera endanlega hreint og í smáatriðum um það allt saman. Ástæðan fyrir því að ég geri það ekki er bara að ég vil ekki dvelja við það því þá er ég enn að verja huganum og tímanum þar í staðinn fyrir að horfa fram fyrir mig. En þetta hefur ekki heldur verið neitt að þvælast fyrir.“ Öflugur á Tik-Tok Ari hefur farið mikinn í kosningabaráttunni á samfélagsmiðlum. Sérstaklega hefur hann verið öflugur á Tik-Tok, gert fjölda myndbanda sem mörg hver hafa slegið í gegn, líkt og þegar hann rúntaði um Austurstræti í miðborg Reykjavíkur. Af hverju ertu svona góður á Tik-Tok? „Það er nú bara að hitta réttu mennina sko, sem kunna þetta. Ég er farinn að nota orð til þeirra sem ég veit ekki hvað þýða. Ég er búinn að spyrja þá og þeir svara mér ekki þannig ég er farinn að nota þau bara þegar ég tala við þá: Þetta er nú meiri boomer-inn hjá þér segi ég en þeir hafa aldrei sagt mér hvað þeir meina þegar þeir segja mér að eitthvað sé boomer, bara dæmi.“ Alla þætti í þessari seríu Af vængjum fram má horfa á á myndbandsvef Vísis og á Sýn+. Þættirnir eru sýndir í línulegri dagskrá á Sýn á sunnudagskvöldum klukkan 19:10. Næsti þáttur verður frumsýndur á föstudagsmorgun á Vísi.
Af vængjum fram Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Tengdar fréttir Sanna hét áður Díana Sanna Magdalena Mörtudóttir hét eitt sinn Díana Magdalena Mörtudóttir en ákvað að breyta um nafn. Eitt sinn furðaði kjósandi sig á því að hún kæmi ekki fram undir réttu nafni en í ljós kom að Íslendingabók hafði aldrei uppfært skráningu nafns hennar. 6. maí 2026 10:01 „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir eitt það vandræðalegasta sem hún hafi þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð. 30. apríl 2026 09:01 Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata í borgarstjórnarkosningum varð eitt sinn fyrir því óláni að drekka óvart áfengan drykk en Kristinn drekkur ekki áfengi. Óafvitandi keyrði bíl með drykkinn í hendi og skellti sér síðan í útihlaup sem fór ekkert sérstaklega vel. 23. apríl 2026 07:01 „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52 Mest lesið Tapaði ellefu milljónum Lífið Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Bíó og sjónvarp Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Tíska og hönnun Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Lífið Hvað veistu um… pasta? Lífið Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Lífið Kynþokkafullir með fortíðarþrá Tónlist Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Lífið Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Lífið Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Lífið samstarf Fleiri fréttir Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Hvað veistu um… pasta? Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Oddvitaáskorunin: Kleinan toppurinn á tilverunni Eldpiparshausar í átkeppni Læknuð af þrálátum hita og margra mánaða orkuleysi eftir jógaferð Ellefu ára þegar fyrrverandi maður Mariuh Carey vildi gera hana að stjörnu Sanna hét áður Díana Oddvitaáskorunin: Heillaðist alveg af Guðrið Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Gráhærð og aldrei glæsilegri Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins miðaldra Mætti með sextán ára gamalt prump bróður síns „Agaleysið er algjört“ Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lively og Baldoni náðu sáttum Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Sjá meira
Sanna hét áður Díana Sanna Magdalena Mörtudóttir hét eitt sinn Díana Magdalena Mörtudóttir en ákvað að breyta um nafn. Eitt sinn furðaði kjósandi sig á því að hún kæmi ekki fram undir réttu nafni en í ljós kom að Íslendingabók hafði aldrei uppfært skráningu nafns hennar. 6. maí 2026 10:01
„Ég stöðvaði þessar samfarir“ Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir eitt það vandræðalegasta sem hún hafi þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð. 30. apríl 2026 09:01
Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata í borgarstjórnarkosningum varð eitt sinn fyrir því óláni að drekka óvart áfengan drykk en Kristinn drekkur ekki áfengi. Óafvitandi keyrði bíl með drykkinn í hendi og skellti sér síðan í útihlaup sem fór ekkert sérstaklega vel. 23. apríl 2026 07:01
„Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52