Læknuð af þrálátum hita og margra mánaða orkuleysi eftir jógaferð Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. maí 2026 11:57 Stefanía fór í jógaferð til Tenerife sem hafði góð áhrif á hana eftir margra mánaða glímu við hita og orkuleysi. Tónlistarkonan Stefanía Svavarsdóttir segist hafa klesst á vegg í nóvember og í kjölfarið glímt við þrálátan hita og orkuleysi í marga mánuði. Hún ákvað að skella sér í jógaferð til Tenerife og taugakerfið hafi þar náð algjörri slökun.
Stefanía greindi frá þessu fyrr í dag með myndaröð og færslu á samfélagsmiðlum sínum. „Er hægt og rólega að lenda eftir dásamlegt „yoga retreat“ á Tenerife,“ skrifar hún í færslunni. View this post on Instagram A post shared by Stefanía Svavarsdóttir (@stefaniasvavars) Hún hafi klesst á vegg í nóvember síðastliðnum og líkami hennar í kjölfarið ákveðið að hægja á henni með þrálátum hita og orkuleysi í marga mánuði. „Það er búið að vera rosalega lærdómsríkt ferli því ég er bara þannig týpa að ég vil vera að græja og gera allan daginn alla daga og á oft erfitt með að slaka almennilega á. Þessi ferð kom þess vegna eins og himnasending, ég fékk skilaboð frá góðri vinkonu um að þetta væri eitthvað fyrir mig og ég ákvað að skella mér,“ skrifar hún. Stefanía kynnist fjölmörgum góðum konum í ferðinni. Upplifunin hafi verið einstök. „Við iðkuðum mjúkt jóga og jóga nidra tvisvar á dag, hópur kokka eldaði ofan í okkur 5 stjörnu vegan kræsingar í öll mál og ég kynntist svo yndislegum konum og það varð til svo kærleiksríkt og nærandi „sisterhood“ sem var algjör heilun útaf fyrir sig. Heimurinn opnaðist einhvern veginn aftur að nýju þegar taugakerfið náði algjörri slökun og það varð meira rými í hjartanu til að taka á móti og njóta og gefa af sér,“ skrifar hún. Hún hafi jafnframt lært nýtt hugtak á ensku: „fuck it, book it!“ eða „Skítt með það, bókaðu það“ á íslensku. Hún mælir með fyrir alla sem séu að pæla í slíkri ferð að bóka hana bara. Stefanía fór til Tene.
Spánn Jóga Heilsa Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Ólétt 52 ára Lífið Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira