Eitt samtal getur breytt deginum Alda Björk Harðardóttir skrifar 5. maí 2026 11:31 Í samfélagi þar sem mikill hraði er á öllu er auðvelt að gleyma hversu miklu máli einföld mannleg samskipti skipta. Félagsleg tengsl hafa afgerandi áhrif á heilsu og vellíðan og því skiptir miklu að hlúa að þeim. Félagsverkefni Rauða krossins miða að því að styrkja og efla félagslega þátttöku einstaklinga og hópa. Fyrir marga er dagurinn hljóður og einmanalegur, en stundum þarf ekki nema eitt samtal til að breyta því. Félagsverkefni Rauða krossins snýst um að tengja fólk saman, þar sem sjálfboðaliðar gefa klukkustund á viku af tíma sínum í eitt ár. Verkefnið felst ekki í stórum aðgerðum eða flóknum verkefnum, heldur í einföldum augnablikum sem skipta miklu máli. Kaffibolli, göngutúr eða símtal getur haft djúpstæð áhrif á þann sem fær stuðninginn. Fyrir þá sem njóta félagsskaparins, svokallaðir gestgjafar, getur heimsóknin dregið úr einmanaleika og aukið lífsgæði. Tilhlökkun fyrir heimsókn getur orðið mikilvægur þáttur í daglegu lífi og hjálpað til við að vinna gegn vanlíðan, einangrun og langvarandi einmanaleika. Rannsóknir sýna að félagsleg einangrun getur haft neikvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. Fyrir þann sem fær vin er það oft einfaldlega tilfinningin að einhver hugsi til þeirra sem skiptir mestu máli. Í könnun sem nýlega var gerð meðal gestgjafa kom meðal annars fram mikilvægi þess að finna tilgang í lífinu og hafa eitthvað við að vera. Með þátttöku í félagsverkefnum Rauða krossins er unnið markvisst gegn þessari einangrun og stuðlað að sterkara og hlýrra samfélagi. Verkefnið er ekki síður gefandi fyrir sjálfboðaliðana sjálfa. Það býður upp á tækifæri til að kynnast nýju fólki, læra af lífsreynslu annarra og finna ánægjuna af því að hjálpa. Sjálfboðaliðastarf styrkir einstaklinga á margvíslegan hátt, eykur sjálfstraust, veitir aukna lífsánægju og dýpkar samfélagsvitund. Allir hafa eitthvað fram að færa og eru sjálfboðaliðar okkar á öllum aldri og úr öllum hópum samfélagsins. Einn sjálfboðaliði orðaði það svo: „Ég held að þetta sé mjög gefandi fyrir okkur báðar. Það hefur myndast einstakt samband. Þetta er eitt af því sem gefur mér góðan tilgang…“ Sjálfboðaliðar í verkefninu fá góða þjálfun áður en störf hefjast, sem og reglulega eftirfylgni, stuðning og fræðslu. Ánægja þátttakenda er mikil en 98% sjálfboðaliða mæla með þátttöku í verkefninu. Það þarf ekki alltaf mikið til að hafa áhrif. Höfundur er verkefnastjóri félagsverkefna hjá Rauða krossinum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar