Furðar sig á æðibunuganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“ Aron Guðmundsson skrifar 4. maí 2026 22:57 Finnur Freyr, þjálfari Vals Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals var afar rólegur þegar hann mætti til viðtals hjá Andra Má Eggertssyni eftir ótrúlegan sigur liðsins í leik fjögur gegn Grindavík nú í kvöld. „
Þetta var hundaslagur, algjör box slagur af gamla skólanum sem við sem betur fer náðum að vinna. Þetta voru tvö lið að keppa, tvö lið sem lögðu allt í þetta og við náðum að hafa betur. Breki átti tvo stóra þrista en við náðum einhvern vegin að gera eitthvað og svo brjóta þeir á Callum í þristinum þegar hann er í neyðarskoti, það hjálpaði til.“ Valsmenn eru þunnskipaðir en Lazar Nikolic og Frank Booker eru báðir meiddir. Spurður út í stöðuna segir Finnur að liðið hafi vitað fyrir einvígið að Grindavík væri með gott lið það að missa þessa lykilmenn úr liðinu myndi vissulega ekki hjálpa til. Þá bendir hann á að aðrir leikmenn fái tækifæri til að stíga upp í þessari baráttu sem liðið er í. „Igor og Hjálmar grípa báðir gæsina í kvöld. Við töluðum um það fyrir fyrsta leikinn að Grindavík er með stórkostlegt lið og yrðu virkilega erfiðir við að eiga. Við erum núna búnir að missa tvo lykilmenn sem hafa verið mikilvægir fyrir okkur í úrslitakeppninni og það gerir þetta ekkert auðveldara. Þessir strákar eru búnir að stíga upp. Núna er þetta bara barningur, reyna að finna leiðir, reyna að sjá boltann fara oftar ofan í og reyna að ná nokkrum stoppum. Við vorum í bölvuðu basli með sóknarfráköstin í þessum leik en þeir fá margar stórar körfur út frá sóknarfráköstunum. Þetta var eins lítið taktískur leikur og þeir gerast heldur er þetta bara viljastyrkurinn og að boltinn skopar niður en ekki upp úr.“ Þekkir oddaleikina Valur fór einnig í oddaleik gegn Keflavík á dögunum. Hvernig leggst það í þig að vera á leiðinni á annan oddaleik? „Það er búið að vera sagan alveg síðan ég kom í Val. Við erum búnir að spila helvíti marga oddaleiki og ég held að þetta sé fyrsti oddaleikurinn sem við spilum ekki á heimavelli síðan ég kom. Það er stutt á milli í þessu og af einhverjum ástæðum þarf að drífa þetta af núna eftir að það hafa alltaf verið þrír dagar á milli. Bæði lið fá að bíða jafn stutt. Þetta verður leðjuslagur á miðvikudaginn eða ekki, getur verið hvað sem er. Sjáum hvað gerist.“
Bónus-deild karla Valur Grindavík Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira