Byrjum á grunninum ekki þakinu Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir skrifar 4. maí 2026 07:17 Besta starf í heimi er að vera leikskólakennari. Ég er samt í veikindaleyfi (í alvöru) og ekki síst vegna starfsumhverfis sem virðist ekki vera ástæða til að laga. Í hverfinu mínu er samt áætluð mikil aukning húsnæðis án þess að hugsa um grunnþarfir líkt og leik- og grunnskóla (þetta er Laugarneshverfið ef einhver er að velta staðsetningu fyrir sér). Í stað þess að tryggja að börn geti sótt leikskóla í hverfinu sínu koma upp hugmyndir um daggæslu í kosningabaráttu einhverja flokka fyrir komandi kosningar. Fyrirtæki eigi að sjá um gæslu fyrir börn starfsfólks því faglegt starf skiptir engu máli fyrir yngstu börnin. En foreldrar vilja meira fyrir börn sín en gæslu. Foreldrar vilja leikskóla í hverfinu sínu og ég held að það hefði mátt tryggja það í mínu hverfi með því að vinna betur að leikskólanum Laugasól sem bíður eftir niðurrifi og byggingu nýs húsnæðis. Foreldrar vilja gott starf og kennara sem eru vakandi yfir þroska og þörfum barna þeirra. Það þarf að bæta starfsumhverfi leikskóla en ekki búa til gæslu í fyrirtækjum með starfsfólki sem stoppar stutt við þ.e. ef fólk fæst til starfa. Í leikskóla leggjum við grunninn því eins og þegar við byggjum hús þá byrjum við á grunninum ekki þakinu. Leikur barna leggur grunninn að m.a. félagsfærni, læsi, stærðfræði, sköpun, sterkri sjálfsmynd og þekkingu á réttindum allra barna. En til þess þurfum við vel menntaða kennara sem hafa þekkingu á hvernig má efla alhliða þroska barna og þá þurfum við hafa minni áhyggjur af niðurstöðum Pisa, lesa sér til gagns, sjálfsmynd, samskiptum, hegðunarerfiðleikum og gagnrýnni hugsun því við höfum lagt grunninn. Við þurfum góða leikskóla með faglegt og metnaðarfullt starf, vel menntað fagfólk og gott starfsumhverfi í heilnæmu húsnæði. Hvaða stjórnmálaflokkur hugsar til lengri tíma og sér að það skiptir máli að grunnurinn sé sterkur svo hægt sé að byggja ofan á. Einfaldar lausnir gera ekkert fyrir framtíð okkar stórkostlegu barna. Höfundur er leikskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Besta starf í heimi er að vera leikskólakennari. Ég er samt í veikindaleyfi (í alvöru) og ekki síst vegna starfsumhverfis sem virðist ekki vera ástæða til að laga. Í hverfinu mínu er samt áætluð mikil aukning húsnæðis án þess að hugsa um grunnþarfir líkt og leik- og grunnskóla (þetta er Laugarneshverfið ef einhver er að velta staðsetningu fyrir sér). Í stað þess að tryggja að börn geti sótt leikskóla í hverfinu sínu koma upp hugmyndir um daggæslu í kosningabaráttu einhverja flokka fyrir komandi kosningar. Fyrirtæki eigi að sjá um gæslu fyrir börn starfsfólks því faglegt starf skiptir engu máli fyrir yngstu börnin. En foreldrar vilja meira fyrir börn sín en gæslu. Foreldrar vilja leikskóla í hverfinu sínu og ég held að það hefði mátt tryggja það í mínu hverfi með því að vinna betur að leikskólanum Laugasól sem bíður eftir niðurrifi og byggingu nýs húsnæðis. Foreldrar vilja gott starf og kennara sem eru vakandi yfir þroska og þörfum barna þeirra. Það þarf að bæta starfsumhverfi leikskóla en ekki búa til gæslu í fyrirtækjum með starfsfólki sem stoppar stutt við þ.e. ef fólk fæst til starfa. Í leikskóla leggjum við grunninn því eins og þegar við byggjum hús þá byrjum við á grunninum ekki þakinu. Leikur barna leggur grunninn að m.a. félagsfærni, læsi, stærðfræði, sköpun, sterkri sjálfsmynd og þekkingu á réttindum allra barna. En til þess þurfum við vel menntaða kennara sem hafa þekkingu á hvernig má efla alhliða þroska barna og þá þurfum við hafa minni áhyggjur af niðurstöðum Pisa, lesa sér til gagns, sjálfsmynd, samskiptum, hegðunarerfiðleikum og gagnrýnni hugsun því við höfum lagt grunninn. Við þurfum góða leikskóla með faglegt og metnaðarfullt starf, vel menntað fagfólk og gott starfsumhverfi í heilnæmu húsnæði. Hvaða stjórnmálaflokkur hugsar til lengri tíma og sér að það skiptir máli að grunnurinn sé sterkur svo hægt sé að byggja ofan á. Einfaldar lausnir gera ekkert fyrir framtíð okkar stórkostlegu barna. Höfundur er leikskólakennari.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar