Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar 2. maí 2026 14:03 Á síðustu áratugum hafa alþjóðleg próf haft sífellt meiri áhrif á menntastefnu ríkja um allan heim. Þar hefur PISA könnunin, sem er framkvæmd af OECD, orðið eitt þekktasta og áhrifamesta mælitæki til að bera saman frammistöðu nemenda á milli landa. Ísland hefur tekið þátt í PISA frá upphafi en umræða um gagnsemi þátttökunnar hefur orðið sífellt háværari. Sumir telja að þátttakan veiti mikilvægar upplýsingar um stöðu íslenska menntakerfisins á meðan aðrir telja að prófið einfaldi kannski hugmyndir um hvað telst góð menntun og geti jafnvel haft skaðleg áhrif á stefnumótun. Spurningin sem margir velta því fyrir sér er því einföld: ætti Ísland að halda áfram að taka þátt í PISA? Ein sterkustu rökin fyrir þátttöku Íslands í PISA er að prófið veitir mikilvægan alþjóðlegan samanburð. Í heimi þar sem menntun er talin lykilforsenda efnahagslegrar þróunar vilja stjórnvöld í hverju landi vita hvernig nemendur standa sig miðað við jafnaldra sína í öðrum löndum. PISA sem meðal annars mælir lestrarfærni, stærðfræðilæsi og náttúrufræðilæsi fimmtán ára ungmenna, getur þannig gefið ákveðna mynd af grunnfærni sem talin er mikilvæg í nútímasamfélagi. Slíkar upplýsingar geta hjálpað stjórnvöldum að greina veikleika í menntakerfinu og gert þeim kleift bregðast við með umbótum. Þátttakan getur einnig stuðlað að auknu gagnsæi í menntamálum. Þegar niðurstöður eru birtar opinberlega skapast ákveðin ábyrgð gagnvart almenningi. Foreldrar, kennarar og stjórnmálamenn geta fylgst með þróuninni og rætt hvort breytinga sé þörf. Fyrir lítið land eins og Ísland getur það einnig verið gagnlegt að læra af öðrum þjóðum. Þegar lönd sem ná góðum árangri í PISA vekja athygli getur það hvatt til umræðu um hvaða áherslur í þeirra kerfum gætu nýst hér heima. En þrátt fyrir þessa kosti hafa margir fræðimenn bent á að áhrif PISA geti verið meiri en réttlætanlegt er miðað við hvað prófið raunverulega mælir. Eitt helsta vandamálið er sú mikla áhersla sem lögð er á röðun landa í sæti. Í fjölmiðlum birtast oft niðurstöður sem eins konar stigatafla þar sem lönd keppa um að vera ofarlega á listanum. Slík framsetning getur gefið tilkynna að munur á milli landa sé mikill og merkingarbær þó að hann sé í raun stundum lítill eða jafnvel ekki tölfræðilega marktækur. Smávægilegar breytingar á stigum geta því valdið því að land færist upp eða niður á röðunarlistanum án þess að raunveruleg breyting hafi orðið á frammistöðu nemenda. Þessi áhersla á sætaröðun getur einnig haft áhrif á hvernig stjórnmálamenn bregðast við niðurstöðunum. Í sumum tilvikum eru þær notaðar til að skapa tilfinningu um kreppu í menntakerfinu jafnvel þó gögnin gefi ekki tilefni til slíkrar niðurstöðu. Þegar land lendir neðarlega á listanum getur myndast pólitískur þrýstingur um að grípa til hraðra umbót. Stundum án þess að nægilega vel sé skoðað hvort þær séu raunverulega studdar af rannsóknargögnum. Þannig getur PISA orðið að tæki í pólitískri umræðu frekar en hlutlaus mæling á stöðu menntakerfisins. Annað gagnrýnisatriði snýr að því að PISA mælir aðeins hluta af því sem telst til góðrar menntunar. Prófið leggur áherslu á þrjú svið: lestur, stærðfræði og náttúrufræði. Þó að þessi svið séu vissulega mikilvæg ná þau ekki utan um alla þá þætti sem skipta máli í skólastarfi. Skólar gegna einnig hlutverki í að efla félagsfærni, skapandi hugsun, listir, lýðræðisvitund og vellíðan nemenda. Slíkir þættir eru erfitt að mæla með stöðluðum prófum og fá því lítið vægi í alþjóðlegum samanburði. Sumir óttast að þegar PISA fær mikla athygli geti menntakerfið farið að einblína um of á þau svið sem prófið mælir á kostnað annarra. Rannsóknir benda einnig til þess að félagslegur bakgrunnur hafi mjög sterk áhrif á frammistöðu nemenda í stöðluðum prófum. Í sumum tilvikum getur félagsleg staða skýrt stóran hluta af muninum á árangri nemenda. Þetta þýðir að niðurstöður PISA segja ekki aðeins eitthvað um gæði menntakerfis heldur einnig um ójöfnuð í samfélaginu. Ef stjórnvöld túlka niðurstöðurnar eingöngu sem mælikvarða á starf skóla geta þau misst af stærri samfélagslegum þáttum sem hafa áhrif á námsárangur. Þrátt fyrir þessa gagnrýni telja margir að lausnin sé ekki að hætta þátttöku í PISA heldur að túlka niðurstöðurnar með meiri varfærni. Alþjóðlegur samanburður getur verið gagnlegur ef hann er notaður sem eitt af mörgum verkfærum til að skilja menntakerfið. Vandinn skapast fyrst og fremst þegar prófið fær of stórt hlutverk og verður að meginstefnu eða markmiði í sjálfu sér. Fyrir Ísland, sem er lítið samfélag með tiltölulega fáa nemendur, getur þátttaka í alþjóðlegum rannsóknum haft ákveðið fræðilegt gildi. Hún gerir íslenskum rannsakendum kleift að bera saman gögn við önnur lönd og skoða þróun menntunar í alþjóðlegu samhengi. Á sama tíma er mikilvægt að muna að menntakerfi eru mótuð af menningu, samfélagsgerð og sögulegum aðstæðum. Það sem virkar vel í einu landi er ekki endilega hægt að yfirfæra beint yfir á annað. Umræðan um þátttöku Íslands í PISA snýst því ekki aðeins um prófið sjálft heldur einnig um það hvernig við skiljum menntun og hvaða markmið við setjum menntakerfinu. Ef PISA er notað sem tæki til að vekja umræðu, greina ákveðna veikleika og læra af reynslu annarra landa getur það verið gagnlegt. Ef það er hins vegar notað sem einföld stigatafla sem á að segja allt um gæði menntakerfisins getur það leitt til rangra ályktana og jafnvel skaðlegra ákvarðana. Í lokin má segja að spurningin sé ekki hvort Ísland eigi að taka þátt í PISA eða ekki, heldur hvernig niðurstöðurnar eru notaðar. Með gagnrýnni hugsun, góðu gagnalæsi og virkri þátttöku kennara og fræðimanna í umræðunni er hægt að nýta slíkar rannsóknir án þess að láta þær stjórna menntastefnunni alfarið. Menntun er of flókið og mikilvægt fyrirbæri til að vera mælt með einu prófi. En rétt notað, getur slíkt próf samt varpað ljósi á mikilvæga þætti í þróun menntakerfisins. Höfundur er framhaldsskólakennari, háskólanemi og móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson Skoðun Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar Erna Bjarnadóttir Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Sjálfbærni sem drifkraftur verðmætasköpunar Jón Gunnarsson,Sara Júlía Baldvinsdóttir,Helga Margrét Óskarsdóttir,Júlía Huang,Jóhanna Sól Erlendsdóttir,Ólöf Helga Þórmundsdóttir,Alda Marín Jóhannsdóttir,Jóna Rut Vignir,Pétur Melax,Rakel Sara Magnúsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Vex Ísland í eina átt? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson skrifar Skoðun Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Mikilvægir áfangar í orkumálum Vestfjarða Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson Skoðun
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Sjálfbærni sem drifkraftur verðmætasköpunar Jón Gunnarsson,Sara Júlía Baldvinsdóttir,Helga Margrét Óskarsdóttir,Júlía Huang,Jóhanna Sól Erlendsdóttir,Ólöf Helga Þórmundsdóttir,Alda Marín Jóhannsdóttir,Jóna Rut Vignir,Pétur Melax,Rakel Sara Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar
Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar
Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson Skoðun