Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir og Lína Björg Tryggvadóttir skrifa 1. maí 2026 11:17 Barnamenning hefur lengi verið tengd vorinu og sumardeginum fyrsta, þegar líf og gleði færist yfir samfélagið og börn fá aukið rými til að njóta þess að vera úti, í leik og sköpun. Á höfuðborgarsvæðinu hefur Barnamenningarhátíð Reykjavíkur verið haldin á þessum tíma þar sem boðið hefur verið upp á fjölbreytta viðburði fyrir börn og fjölskyldur. Í ár voru Barnamenningardagar haldnir í fyrsta sinn í flestum sveitarfélögum á Suðurlandi dagana í kringum sumardaginn fyrsta og þóttu þeir heppnast einstaklega vel. Víða um landshlutann fylltust hús, skólar og menningarstaðir af lífi þar sem börn og ungmenni fengu tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum viðburðum, skapa, leika sér og njóta menningar. Sú upplifun sem birtist á Barnamenningardögum endurspeglar vel hvað barnamenning er í raun. Hún verður til þegar börn fá að skapa, leika sér og taka þátt. Í grunninn má sjá hana í þremur einföldum myndum: sem menningu fyrir börnin, með börnum og skapaða af börnum. Fyrst og fremst er barnamenning þó fallegt, flæðandi afl og er listsköpun barna eitt þeirra öflugasta eðlislæga tjáningarform. Það er mikilvægt að veita barnamenningu umvefjandi stuðning þar sem henni er skapaður vettvangur fyrir öll börn til að njóta sín og finna til ánægju í skapandi athöfnum. Við sjáum að þegar börn fá að skapa og vinna saman hefur það áhrif á hvernig þau tengjast öðrum og skilja hvert annað. Með því móti ýtir barnamenningin undir félagslegan þroska barna og auðgar líf þeirra á gleðilegan og gefandi hátt. Hún hefur einnig áhrif á samfélagið í heild bæði í dag og til framtíðar, og leggur grunn að því að börn verði virkir og ábyrgir þátttakendur síðar á lífsleiðinni. Þegar börn fá rými til að tjá sig og vera virkir þátttakendur í samfélaginu verða til hugmyndir, tengsl og upplifanir sem annars hefðu ekki komið fram. Það er einmitt á slíkum augnablikum sem barnamenningin verður lifandi afl. Þegar við hin hlustum á börn þá opnast oft ný sýn á heiminn. Enda nálgast börn hlutina af forvitni, hugrekki og sköpunarkrafti sem minnir okkur hin á mikilvægi þess að vera forvitin um lífið, sýna hugrekki til að fara út fyrir okkar eigin þægindaramma, leika okkur í veruleikanum og þannig mynda dýpri og jafnvel óvænt tengsl og þannig öðlast virkari og öflugri samkennd. Barnamenning og samkenndin Það er eitt að ræða mikilvægi barnamenningar fyrir þroska barna, en annað að líta á hana sem þátt í að efla samkennd í samfélaginu í heild. Þetta verður sérstaklega áberandi þegar horft er til þess að samkennd meðal íslenskra ungmenna virðist fara minnkandi, samkvæmt niðurstöðum PISA. Það er mikilvægtað bregðast við því, enda er samkenndin talin lykilþáttur í lýðræðislegu og umburðarlyndu samfélagi. Í hraða nútímans þar sem samfélagið er síbreytilegt og tæknin í stöðugri þróun má líta á samkennd sem einn af mikilvægustu hæfniþáttum samtímans, jafnvel eins konar „skynfæri“ sem hjálpar okkur að skilja hvert annað. Samkennd er ekki fastmótaður eiginleiki heldur mótast hún í samskiptum og með reynslu. Barnamenning skapar einmitt þannig rými, þar sem börn fá tækifæri til að setja sig í spor annarra, deila upplifun og tengjast hvert öðru í gegnum sköpun og leik. Það er tilefni til að huga að því hvernig við getum markvisst ræktað samkennd í samfélaginu, og þar eru börnin ef til vill okkar bestu kennarar. Barnamenning á stafrænum miðlum Það er einnig vert að nefna að í dag fer sífellt stærri hluti barnamenningar fram á stafrænum miðlum, sem hefur óneitanlega áhrif á hvernig börn leika sér, læra og tjá sig. Þessi þróun hefur bæði kosti og áskoranir í för með sér enda sýna rannsóknir að óheilbrigð notkun skjás virðist hafa bein áhrif á dvínandi samkennd barna. Á sama tíma eru börn ekki aðeins neytendur heldur virkir þátttakendur í stafrænu umhverfi, þar sem þau skapa og móta eigin menningu. Því felast einnig tækifæri í að nýta stafræna miðla á skapandi og meðvitaðan hátt, þannig að þeir styðji við tengsl, tilfinningaþroska og samkennd. Með því að tengja barnamenningu og listsköpun við stafrænt umhverfi má t.d. skapa vettvang sem bæði styður við þroska barna og virkari þátttöku þeirra í samfélaginu ásamt því að þróa stafræna menningu á uppbyggjandi hátt. Barnamenning mikilvæg rödd í samfélaginu Það er mikilvægt að styrkja barnamenningu um land allt, umvefja hana og lyfta henni upp. Það er gert með auknu rými fyrir sköpun í námi og samfélagi þar sem raddir barna fá að óma enn sterkar í gjörðum, orðum og listum. Það er gleðilegt að segja frá því að Suðurlandið hefur tekið mikilvæg skref í þessa átt. Þar má m.a. nefna Skjálftann, hæfileikakeppni ungmenna á Suðurlandi, sem hefur verið skilgreint sem áhersluverkefni í Sóknaráætlun Suðurlands. Unnið er að því að innleiða verkefnið í alla grunnskóla á Suðurlandi fyrir vorið 2027 og þannig efla þátttöku barna og ungmenna í skapandi starfi. Ávinningur slíks verkefnis sést best þegar börn standa saman á sviði, deila hugmyndum, hlusta hvert á annað og skapa eitthvað nýtt. Þar verður samkenndin hluti af ferlinu án þess að sérstaklega þurfi að kenna hana og flæðir áfram inn í daglegt líf, nám og störf. Slík nálgun endurspeglast einnig í öðrum verkefnum á svæðinu þar sem sveitarfélög hafa lagt áherslu á að virkja götuleikhús og listasmiðjur í unglingavinnu, sem og Barnamenningardaga. Suðurlandið er kröftugt og iðandi af lífi, list og menningu og samfélögin samofin djúpri tengingu við náttúruna sem er skapandi í sjálfri sér; náttúran og sköpunin er alltumlykjandi. Með hækkandi sól var send út hvatning til allra sveitarfélaga á Suðurlandi um að lyfta barnamenningunni enn frekar upp og með því ljá börnum rödd sem í leiðinni gleður, þroskar og styrkir samkenndarvöðva samfélagsins. Oft er sagt að heilt þorp þurfi til að ala upp eitt barn. Sú hugmynd á vel við í samhengi barnamenningar, þar sem samfélagið í heild; skólar, fjölskyldur, sveitarfélög og menningarlíf tekur þátt í að skapa rými fyrir börn til að þroskast og láta rödd sína heyrast. Kannski snýst þetta að lokum um einfalda hluti eins og að gefa sér tíma til að hlusta, að skapa rými þar sem börn fá að vera þau sjálf og leyfa hugmyndum þeirra að vaxa. Það er þar sem tengslin verða til og samkenndin fær að dafna. Að njóta barnamenningar er ekki bara réttur barna heldur einnig réttur okkar allra. Það eru börnin sem minna okkur á mikilvægi náungakærleikans, heiðarleikans og samkenndarinnar. Með barnamenningu opnum við augu okkar fyrir litadýrð mannlífsins og minnum okkur á það sem skiptir mestu máli. Gleðilega Barnamenningarhátíð! Halldóra Rut Baldursdóttir, leikkona og verkefnastjóri Skjálftans á Suðurlandi. Lína Björg Tryggvadóttir, sjávarbyggðafræðingur og verkefnastjóri hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Barnamenningarhátíð Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar