Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Arnar Skúli Atlason skrifar 29. apríl 2026 22:46 Arnar Guðjónsson var léttur í viðtali við Andra Má eftir leik í kvöld. vísir/Anton Þjálfari og leikmenn Tindastóls voru hæstánægðir eftir sigurinn gegn Stjörnunni í kvöld en þjálfari Stjörnumanna sagði sína menn hafa verið „mjúka og vælandi“.
Tindastóll vann öruggan sigur í kvöld og slapp við að fara í sumarfrí en Stjarnan er enn yfir í einvíginu, 2-1, í undanúrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta. „Við komum bara og ætluðum að berjast. Fyrstu tveir leikirnir voru ekki okkur í haginn. Við vitum að þetta er eitt „possession“ til eða frá. Við vitum alveg að þeir eru ekki það mikið betri en við og ættu að sópa okkur það var kannski hugarfarið að halda áfram og vinna,“ sagði Júlíus Orri Ágústsson, leikmaður Tindastóls. Júlíus: Misstum hausinn kannski síðast Sigurinn í kvöld var sá stærsti í seríunni til þessa og Júlíus útskýrði hvernig þetta var. „Bara stemning og við misstum hausinn kannski í seinasta leik. Í kvöld vorum við „on it“ allan tímann og agaðir sóknarlega. Mér fannst þetta bara mjög gott.“ Tindastóll leiddi í hálfleik með 21 stigi í dag en í seinasta leik leiddu Stólarnir með 19 stigum í hálfleik og glutruðu því niður. Þeir fóru vel yfir hlutina í hálfleik því Stjarnan náði ekki að brjóta niður forystuna í þessum leik. „Það er ekki alltaf að fara að gerast að við töpum niður 21 stigs mun. Við höldum bara áfram að spila okkar leik og á meðan við spilum á þessum hraða og erum allir að spila saman og dreifa boltanum, þá gengur yfirleitt frekar vel hjá okkur.“ Júlíus Orri var mjög góður í liði Tindastól þegar þeir stungu Stjörnumenn af og hjálpaði mikið á þessum tíma. „Ég reyni að gera mitt besta. Skjóta þegar ég er opinn en auðvitað koma mistök eins og hjá öllum. Mér bara gekk vel í dag.“ Arnar: Menn voru klárir í verkefnið Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls var ánægður með leik sinna manna í kvöld og var kampakátur að leikslokum. „Menn voru klárir í verkefnið eins og við vorum í hinum leikjunum.“ Tindastóll fékk mikið af villum í upphafi leiks og lenti í smá villuvandræðum en komst í gegnum það. „Það hvarflaði að mér. Við vorum í smarki harki þar og smá basli en við brutum af okkur og þá er dæmt á það.“ Stólarnir voru mikið yfir í hálfleik og Arnar var spurður hvernig menn tækluðu þetta, að hafa svo gott forskot og missa ekki hausinn, en hann var ekkert að reyna að tala við þá sjálfur: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá. En við töluðum ekki rosalega mikið um það. Við töluðum meira um hvað þeir voru að gera frá boltanum - að við værum ekki að bregðast við því en Pétur gleymdi því einu sinni og fékk á sig óíþróttamannslega villu.“ Tindastóll þarf að vinna í Ásgarði á sunnudaginn til að knýja fram oddaleik og planið hjá Arnari er einfalt. „Þetta byrjar 5 á móti 5 og við gefum allt í þetta.“ Baldur Þór Ragnarsson bjóst við meiru af sínum mönnum í kvöld.Vísir / Anton Brink Baldur: Vorum mjúkir og vælandi Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var svekktur með leik sinna manna í kvöld. „Þeir voru mikið betri en við í dag. Þeir vildu þetta miklu meira í en við í dag og kepptu miklu harðar og við vorum soft.“ Afhverju voru Stólarnir betri í kvöld og orkan meiri hjá þeim? „Þeir kepptu mikið harðar en við og við vorum bara soft og vælandi hérna.“ Hvernig getur þetta gerst ? „Þú þarft að fara í sálfræði til að útskýra það. Þessar aðstæður búa þetta stundum til og það er eins og það er. Þeir voru betri en við í dag.“ Stjarnan náði að minnka muninn í 4. leikhluta og Baldur hefði verið sáttari að ná þessu neðar. „Já. Hitta oftar í markið og ná fleiri stoppum. Það hefði verið aðeins gaman. Þeir aðeins betri í dag en við.“ Baldur hlakkar til að fara í Garðabæinn og segir liðið sitt verði tilbúið fyrir það. „Bara stemning. Þetta er playoffs. Það er erfitt og það á að vera erfitt. Bara áfram að keppa.“
Bónus-deild karla Tindastóll Stjarnan Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Fleiri fréttir „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Sjá meira