Sport

Hver verður fljótastur að hlaupa míluna?

Boði Logason skrifar
Margir af bestu hlaupurum landsins ætla að taka þátt í fyrsta mílu-hlaupinu á Íslandi. Allt í beinni á Vísi.
Margir af bestu hlaupurum landsins ætla að taka þátt í fyrsta mílu-hlaupinu á Íslandi. Allt í beinni á Vísi. samsett

Íslandsmeistaramótið í götumílu fer fram á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði í kvöld en þetta er í fyrsta skiptið sem keppnin fer fram hér á landi. Beint útsending verður frá keppninni á Vísi.

Margir af bestu hlaupurum landsins ætla að taka þátt og má þar nefna Anítu Hinriksdóttur, Andreu Kolbeinsdóttur, Elísu Kristinsdóttur, Baldvin Þór Magnússon og Þorstein Roy. 

Keppnin snýst um að hlaupa eina mílu, eða 1609 metra, á sem stystum tíma. Hlaupið verður í þremur hollum. Fyrst fer fram opinn flokkur þar sem allir geta tekið þátt án tímalágmarka. Og svo verða elítuflokkarnir ræstir út, bæði í kvenna og karlaflokki. 

Hægt verður að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á Vísi. Hún hefst klukkan 19.

Spilari birtist í fréttinni rétt fyrir klukkan sjö.


Tengdar fréttir

Kempur reyna fyrir sér í fyrsta mílu-hlaupinu

Á morgun verður brotið blað í íslenskri hlaupasögu þegar fyrsta Íslandsmeistaramótið í götumílu fer fram á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði. Keppnin, sem ber heitið Vecct Mílan, verður í beinni útsendingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×