Hleðslustöðin Árneshreppur Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar 28. apríl 2026 09:02 Þeir sem hafa komið alla leið norður í Árneshrepp í Strandasýslu vita hversu einstakur staður hreppurinn er. Fegurðin er allt umlykjandi og öldur Húnaflóa sverfa fjörusteinana. Í Árneshreppi læðist kyrrðin að þér, fjöllin umvefja þig og hlýja samfélagsins finnur leið inn að þínum innsta kjarna. Árneshreppur er staður sem má ekki fara í eyði. Samfélagið á Íslandi þarf að hafa litróf. Það sækjast ekki allir eftir lífi í borg, með steyptum gangstéttum, umferðarteppum og streituríku umhverfi. Náttúran og kyrrðin eru eitt besta mótvægið við auknum hraða samfélagsins, kulnun og streitu. Við þurfum staði þar sem hægt er að staldra við og vera – án þess að hver hugsun snúist um hversdags áhyggjur og ótal verkefni. Ég sé fyrir mér að afskekktir staðir með einstaka nærveru muni gegna lykilhlutverki í heilsu fólks á komandi árum. Staður eins og Árneshreppur er vettvangur þar sem hægt er að sinna fjarvinnu, skrifa bók, semja tónlist eða einfaldlega anda djúpt. Þar má ganga á fjöll, njóta kyrrðarinnar og hlaða batteríin. Okkur er tíðrætt um hleðslustöðvar fyrir ökutæki – en við megum ekki gleyma okkur sjálfum. Árneshreppur er slík hleðslustöð. Og slíkir staðir þurfa einfaldlega að vera til. En til þess að slík hleðslustöð geti þjónað hlutverki sínu þarf hún að vera aðgengileg. Eins og með aðrar hleðslustöðvar þarf fólk og þjónusta að vera til staðar. Fólk sem býr í Árneshreppi allt árið, svo vegir séu mokaðir, verslun opin og skóli starfandi. Helsta áskorun íbúa í Árneshreppi eru samgöngur. Nýjar kynslóðir gera eðlilega kröfu um að komast leiðar sinnar á öruggan hátt, vera ekki innilokaðar vikum saman og geta komið og farið eftir þörfum. Það er varla ósanngjörn krafa. Samt hafa íbúar Árneshrepps – og fleiri byggða á landsbyggðinni – þurft að búa við ótryggar samgöngur í áratugi. Er ekki kominn tími til að breyta því? Framkvæmdum við heilsársveg um Veiðileysuháls hefur ítrekað verið seinkað í samgönguáætlunum. Sú samgöngubót skiptir sköpum fyrir framtíð svæðisins – hvort hér verði áfram byggð eða ekki. Þessi 12 kílómetra vegkafli kann að virðast stuttur í stóra samhenginu, en hann gæti opnað á ótal möguleika til að styrkja heilsársbúsetu og ferðaþjónustu í Árneshreppi. En við getum ekki beðið endalaust. Nú þarf að ráðast í framkvæmdir. Í kringum miðja síðustu öld tæmdust byggðir Hornstranda þegar yngri kynslóðir sóttu í þéttbýli eftir vinnu og tækifærum. Nú er Árneshreppur nyrsta byggð á Ströndum, en staðan er ekki sú sama. Tækni nútímans hefur fært okkur ný tækifæri, þó sömu áskoranir séu enn til staðar; erfiðar samgöngur, fábreytt atvinnulíf og fámenni. Samt sækja sífellt fleiri í kyrrð og ró minni samfélaga. Það er því ekki skortur á möguleikum – heldur vilja til að styðja þá. Stjórnvöld þurfa að standa við sín loforð og tryggja nauðsynlegar samgöngubætur. Nú er komið að Árneshreppi. Nú er komið að okkur. Höfundur skipar 2. sæti á lista Framtíðar Árneshrepps. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árneshreppur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar