Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Ester Ósk Árnadóttir skrifar 26. apríl 2026 20:45 Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA Vísir/Pawel „Ég er virkilega vonsvikinn með lélega frammistöðu, Keflavík átti bara skilið að vinna þennan leik. Þetta er bara langt frá því sem við viljum standa fyrir í KA, ég er bara virkilega ósáttur.“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir 1-2 tap á móti Keflavík á heimavelli í dag. „
Mér finnst vanta alla baráttu í okkur og það er gjörsamlega óþolandi fyrir framan okkar fólk hérna. Staðan er 1-1 í leiknum og það er algjört hljóð hjá mínum mönnum inn á vellinum, það er engin að tala saman. Ég vil heyra miklu meira í okkur.“ Hallgrímur nefndi nokkrum sinnum í viðtalinu samskiptaleysi leikmanna. „Ég hef miklar áhyggjur af samskiptaleysinu ef ég á að segja alveg eins og er. Mér finnst bara vanta að menn langi í alvöru að vinna fótboltaleiki. Það er voða gaman á æfingum, við erum flottir þar og erum með góða leikmenn en það bara skiptir engu máli ef þú tekur ekki á því inn á fótboltavellinum þá vinnur þú enga fótboltaleiki alveg sama hvað þú ert góður. Mínir leikmenn þurfa bara að átta sig á því að ef menn leggja sig ekki betur fram að þá spila þeir bara ekki fyrir KA.“ KA er með eitt stig eftir fjórar umferðir og hafa fengið á sig 8 mörk. „Það sem við sýndum inn á vellinum í dag er langt frá því að vera nóg og við þurfum bara að átta okkur á stöðunni, hún er alvarleg. Við erum með eitt stig neðst í töflunni og það þýðir ekki að labba alltaf um og segja að við förum í gang seint. Við þurfum bara að gjöra svo vel og rífa okkur í gang strax.“ Keflavík var yfir í allri baráttu lungað úr leiknum. „Mér fannst við bara óöruggir og ekki klárir, héldum kannski að við myndum bara labba yfir þá. Keflavík voru bara betri en við. Þeir voru betri á boltann, það var alvöru barátta í þeim. Við komumst ósanngjarnt yfir hérna síðan fannst mér allan leikinn vera þannig að við værum ekki með stjórn á hlutunum. Menn þurfa bara að átta sig á því að við þurfum að vinna saman inn á vellinum því við vorum seinir í allt, tölum ekki saman og allt viðbragð seint. Menn voru bara ekki tilbúnir að leggja á sig það sem þarf til að vinna fótboltaleiki.“ Framundan er slagur gegn nágrönnunum í Þór sem hafa farið töluvert betur af stað í deildinni en KA. „Við þurfa að rífa okkur í gang og koma með alvöru baráttu, leggja í þá grunn vinnu sem þarf til að vinna fótboltaleiki. Ef við mætum með það þá erum við flottir, ef ekki þá vinnum við ekki fótboltaleiki.“
KA Besta deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira