Orri skoraði en bikarmeistararnir köstuðu frá sér sigrinum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2026 14:19 Orri Steinn Óskarsson fagnar eftir að hafa komið Real Sociedad í 1-2 gegn Rayo Vallecano. getty/Denis Doyle Ekki vantaði dramatíkina þegar Real Sociedad sótti Rayo Vallecano heim í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Orri Steinn Óskarsson skoraði í 3-3 jafntefli liðanna. Orri var í byrjunarliði nýkrýndra bikarmeistara Real Sociedad sem komust yfir á 22. mínútu með marki fyrirliðans Mikels Oyarzabal. Sergio Camello jafnaði fyrir Rayo Vallecano átta mínútum síðar og staðan var 1-1 í hálfleik. Á 63. mínútu lagði Sergio Gómez boltann á Orra inni á vítateig Rayo Vallecano. Landsliðsfyrirliðinn var yfirvegaður, lagði boltann fyrir sig og setti hann svo í vinstra hornið, framhjá Dani Cárdenas í marki heimamanna. Orri var tekinn af velli fjórum mínútum eftir að hann skoraði. Á 76. mínútu skoraði Oyarzabal annað mark sitt og þriðja mark Real Sociedad af vítapunktinum og staða gestanna orðin ansi vænleg. Rayo Vallecano lagði ekki árar í bát og þegar sex mínútur voru til leiksloka minnkaði Florian Lejeune muninn í 3-2. Ellefu mínútum var bætt við venjulegan leiktíma. Þegar níu mínútur voru liðnar af uppbótartímanum jafnaði Alemao fyrir Rayo Vallecano með skallamarki, 3-3. Skömmu seinna fékk Isi Palazón, leikmaður heimaliðsins, rautt spjald. Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri og liðin sættust á skiptan hlut. Real Sociedad er í 8. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 43 stig. Rayo Vallecano er í 11. sætinu með 39 stig. Orri hefur skorað sex mörk í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu þrátt fyrir að hafa aðeins fimm sinnum verið í byrjunarliði Real Sociedad. Spænski boltinn