Það heitasta í veislutertum Stefán Árni Pálsson skrifar 22. apríl 2026 15:01 Auður og Sylvía þekkja bransann vel. Það er alltaf gaman að sjá hvernig hægt er að gera veisluborð bæði falleg og um leið gómsæt. Nú fer í hönd mikið veislutímabil með útskriftum, fermingum, brúðkaupum og fleiru. Hvað er helst í tísku í veislutertum og veislukökum? Hvernig er hægt að samstilla kökurnar og skreytingarnar? Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og skoðaði hvað þær Auður Ögn Árnadóttir og Sylvía Haukdal eru að gera í 17 sortum þar sem þær baka og skreyta fyrir öll tækifæri, oft á ævintýralegan hátt.
En hvernig veisluborð eru vinsælust? „Þegar stórt er spurt. Það er svolítið, það er náttúrulega, svolítið margt í gangi,“ segir Auður. „Það eru svona nokkrar týpur sem eru vinsælastar en þær eru allar mjög ólíkar. Þetta er svona gamaldags retrólúkk, þar sem þetta er svolítið svona eins og rjómaterta,“ segir Sylvía en bætir við að þurrkuð blóm séu einnig vinsæl. „Þetta er bara ótrúlega fjölbreytt af því að fólk er með svo ólíkar skoðanir. Þannig að við höfum gert bara alls konar. Það var ein kaka sem var skreytt með bómullarblómum,“ segir Sylvía. Auður fer þá inn á brúðartertur. Brúðkaupin flóknari „Fólk er að hanna brúðartertuna sína í stíl við einhvern veginn bara alla veisluna og veislurnar eru jafn misjafnar og þær eru margar. Við verðum oft vör við það að fólk kemur til okkar með svona einhverjar fyrirframgefnar hugmyndir. Og við erum með fjórar tegundir af brúðartertum og þær eru mjög ólíkar en það eru bara tveir botnar í boði, sem sagt ljós karamellubotn og súkkulaðibotn,“ segir Auður en margir eru oft búnir að ákveða súkkulaðibotninn en skipta um skoðun þegar þeir smakka karamellubotninn. „Við leyfum fólki líka aðeins að hafa svona skoðun á því ef það vill breyta einhverju. Ef þú fílar ekki hindber í kökunni eða eitthvað þá er alveg í boði að breyta. Við erum alveg að bjóða svona meiri þjónustu þegar kemur að brúðartertum. Þá er ég alveg tilbúin að, þú veist, að breyta aðeins ef þú værir einmitt bara að fíla hindber. En svo er það líka oft þannig að fólk er ógeðslega ákveðið í súkkulaðiköku af því að það bara elskar súkkulaðikökur. En svo eftir að hafa komið og hitt okkur og spjallað við okkur, þá eru þau kannski með kjöt í matinn, sem er orðið svo þungt og þá mælum við oft með að prófa ljósan botn,“ segir Sylvía en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Vala Matt Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Fleiri fréttir Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Sjá meira