Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar 22. apríl 2026 10:22 Nýleg umfjöllun á Vísi um kynferðisofbeldi milli systkina varpar skýru ljósi á vanda sem hefur lengi verið lítt sýnilegur. Í frásögnum þolenda kemur fram að afleiðingarnar hafi í mörgum tilvikum reynst þyngri en brotið sjálft. Í nýrri meistararannsókn minni, þar sem tekin voru eigindleg viðtöl við fagfólk sem starfar með börnum, kemur fram að þessi reynsla er ekki tilviljunarkennd. Skortur á skýrum skilgreiningum, óljósir verkferlar og takmörkuð úrræði skapa óvissu í viðbrögðum og geta leitt til þess að ofbeldi milli systkina fer fram hjá kerfinu eða fær ekki fullnægjandi eftirfylgd og stuðning. Niðurstöðurnar benda til þess að um sé að ræða kerfisbundinn vanda fremur en einstök tilvik. Þegar ofbeldi á sér stað milli systkina virðist það oftar en ekki falla utan hefðbundinna viðmiða og viðbragðskerfa, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þau börn sem verða fyrir því. Sérstaklega alvarlegt er þegar ábyrgðin færist, með beinum eða óbeinum hætti, yfir á þolandann í stað þess að tryggja vernd og viðeigandi viðbrögð. Ef markmiðið er að tryggja vernd barna er nauðsynlegt að efla skilning á eðli og birtingarmyndum systkinaofbeldis. Það krefst skýrari skilgreininga, samræmdra verkferla og markvissari úrræða innan þeirra kerfa sem bera ábyrgð á velferð barna. Einnig er mikilvægt að styðja fagfólk í að greina slíkar aðstæður og bregðast við þeim á öruggan og faglegan hátt. Umræðan sem nú hefur skapast er mikilvægt skref. Næsta skref er að tryggja að aukin vitund leiði til raunverulegra breytinga í þágu barna. Höfundur er meistaranemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og hefur rannsakað systkinaofbeldi í meistararitgerð sinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ofbeldi barna Kynferðisofbeldi Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Nýleg umfjöllun á Vísi um kynferðisofbeldi milli systkina varpar skýru ljósi á vanda sem hefur lengi verið lítt sýnilegur. Í frásögnum þolenda kemur fram að afleiðingarnar hafi í mörgum tilvikum reynst þyngri en brotið sjálft. Í nýrri meistararannsókn minni, þar sem tekin voru eigindleg viðtöl við fagfólk sem starfar með börnum, kemur fram að þessi reynsla er ekki tilviljunarkennd. Skortur á skýrum skilgreiningum, óljósir verkferlar og takmörkuð úrræði skapa óvissu í viðbrögðum og geta leitt til þess að ofbeldi milli systkina fer fram hjá kerfinu eða fær ekki fullnægjandi eftirfylgd og stuðning. Niðurstöðurnar benda til þess að um sé að ræða kerfisbundinn vanda fremur en einstök tilvik. Þegar ofbeldi á sér stað milli systkina virðist það oftar en ekki falla utan hefðbundinna viðmiða og viðbragðskerfa, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þau börn sem verða fyrir því. Sérstaklega alvarlegt er þegar ábyrgðin færist, með beinum eða óbeinum hætti, yfir á þolandann í stað þess að tryggja vernd og viðeigandi viðbrögð. Ef markmiðið er að tryggja vernd barna er nauðsynlegt að efla skilning á eðli og birtingarmyndum systkinaofbeldis. Það krefst skýrari skilgreininga, samræmdra verkferla og markvissari úrræða innan þeirra kerfa sem bera ábyrgð á velferð barna. Einnig er mikilvægt að styðja fagfólk í að greina slíkar aðstæður og bregðast við þeim á öruggan og faglegan hátt. Umræðan sem nú hefur skapast er mikilvægt skref. Næsta skref er að tryggja að aukin vitund leiði til raunverulegra breytinga í þágu barna. Höfundur er meistaranemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og hefur rannsakað systkinaofbeldi í meistararitgerð sinni.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar