Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Jakob Bjarnar skrifar 21. apríl 2026 07:01 Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, segist aldrei hafa níðst á neinum né nauðgað. Það sem fólk segir um sig sé algjörlega glórulaust. vísir/vilhelm Ingólfur Þórarinsson, sem betur er þekktur sem Ingó veðurguð, stígur fram í ítarlegu viðtali í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni og ræðir í fyrsta sinn opinberlega um ásakanir, útilokunarmenningu og áhrif MeToo-byltingarinnar á líf sitt og feril.
Ingó segir að hann hafi vissulega ekki alltaf verið „kórdrengur“ á yngri árum en flestar þeirra sagna sem gengið hafa um hann eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Hann gagnrýnir það sem hann kallar markvissa atlögu að atvinnuöryggi sínu. „Ég var aldrei að níðast á neinum eða beita ofbeldi eða nauðga eða neitt… það sem fólk segir stundum er bara glórulaust,“ segir Ingó. Í viðtalinu lýsir Ingó því sem hann kallar vaxandi útilokunarmenningu í samfélaginu, þar sem einstaklingar sem víkja frá ríkjandi skoðunum geti átt á hættu að vera teknir og jarðaðir. „Ef þú ferð ekki eftir línunni þá áttu bara í mikilli hættu á að vera tekinn og jarðaður með þeim leiðum sem eru í boði,“ segir hann. Umræðan löngu komin úr böndunum Hann segir umræðuna hafa farið úr böndunum þegar nafnlausar sögur fóru á flug í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Í kjölfarið hafi myndast það sem hann kallar „histeríu“ þar sem hann hafi verið stimplaður á grundvelli ósannaðra frásagna. „Það er verið að segja að ég sé að níðast á unglingsstúlkum eða álíka rugl sem ég þarf að lesa um sjálfan mig.“ „Ég get viðurkennt mín mistök – en þetta er allt annað“ Ingó viðurkennir að hann hafi ekki alltaf hagað sér fullkomlega á yngri árum, meðal annars þegar hann hóf feril sinn ungur í tónlistarheiminum. „Ég get alveg viðurkennt alla mína verstu parta í lífinu… en þeir eru ekkert af þeim sem eru sagðir um mig í þessu rugli.“ Hann bendir á að hegðun sem hann sýndi sem tvítugur maður á böllum sé nú notuð gegn honum áratugum síðar. „Ég var óviðeigandi þegar ég var 21 árs á menntaskólaballi – á það að þýða í dag að ég megi ekki halda tónleika til styrktar góðu málefni?“ En boðaðir tónleikar hans til stuðnings Sólheimum í Grímsnesi voru nýverið slegnir af vegna mótmæla einhverra sem ekki vildu að hann kæmi fram. Almenningur taki virkan þátt í aðförinni Í viðtalinu nefnir Ingó nýlegt dæmi þar sem hann segir almenning taka virkan þátt í því sem hann upplifir sem aðför að sér. Hann lýsir því hvernig kennari við Menntaskólann á Akureyri hafi skrifað opinberlega að hann væri „að níðast á 15 ára stúlkum“, sem hann segir vera alrangt. „Hvernig getur manneskja leyft sér að skrifa þetta opinberlega um fólk sem hún þekkir ekki neitt?“ spyr Ingó. Í seinni hluta viðtalsins beinir Ingó gagnrýni sinni að kerfinu og segir sig hafa staðið varnarlausan gagnvart grófum ummælum. Hann höfðaði meiðyrðamál vegna ummæla sem hann segir hafa verið „eins gróf og hægt er“, þar sem fullyrt var að hann hefði brotið gegn börnum. Sá sem lét ummælin falla var þó sýknaður í héraði. „Þetta er bara skólabókardæmi um mannorðsmorð,“ segir Frosti. Gagnrýnir kerfið og fjölmiðla Ingó gagnrýnir einnig umfjöllun ríkisfjölmiðilsins RÚV og segir aðila sem hafi ráðist að honum hafa fengið jákvæða umfjöllun án þess að honum sjálfum hafi verið gefinn kostur á að svara fyrir sig. „Mér er ekki einu sinni boðið að útskýra hvað sé búið að vera í gangi.“ Þrátt fyrir áralangan storm segir Ingó að hann vilji fyrst og fremst fá að starfa í friði og sjá fyrir fjölskyldu sinni. „Ég er bara einn maður með einn gítar sem fer um og syngur fyrir fólk. Ég hef engin meiri völd en það.“ Ingó segir að endingu að hann sjái þetta viðtal sem lið í því að segja sína hlið sögunnar í eitt skipti fyrir öll og binda enda á langvarandi umræðu sem hann telur hafa verið byggða á misskilningi og ósönnum ásökunum.
Hlaðvörp Mál Ingólfs Þórarinssonar Samfélagsmiðlar Fjölmiðlar Tónlist MeToo Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Fleiri fréttir Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Sjá meira