„Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar 18. apríl 2026 17:03 Í fyrri greinum hér á Vísi hef ég fjallað um Fjallræðu Jesú, sæluboðin, andstöðurnar, og „Faðir vor“, og nú síðast um hvað dæmisögur eru. Þekktasta dæmisaga Jesú er án efa sagan af „miskunnsama Samverjanum“ eða „góða Samverjanum“, eins og hann er kallaður á nágrannamálum okkar. Dæmisöguna er einungis að finna í Lúkasarguðspjalli, en það eitt guðspjalla varðveitir margar af þeim dæmisögum sem lesendum eru kærar, á borð við söguna um týnda soninn. Hættan við kunnugleika er sú, að hinn sláandi boðskapur sögunnar er ekki alltaf ljós þeim sem lesa söguna eða heyra í sunnudagaskólum landsins. Samverjar og Gyðingar Á tíma Jesú bjuggu nokkur þjóðarbrot á því svæði sem liggur sunnan og norðan við Jerúsalem og nefndust þá Júdea og Samaría. Enn norðar en Samaría lá Galílea en þaðan var Jesús, sem skv. guðspjöllunum ólst upp í Nasaret, þorpi sem líklega hefur haft um 300 íbúa á þeim tíma. Blómaskeið Gyðinga skv. ritum Biblíunnar var um árið þúsund fyrir kristsburð, þegar Davíð konungur réði yfir landsvæði sem náði frá Egyptalandi í suðri og inn í Líbanon og Sýrland í norðri. Eftir dauða Salómons Davíðssonar skiptist konungsríkið í tvennt, Ísrael hið forna í norðri og Júdeu í suðri, en í norðurríkinu var borgin Samaría höfuðborg. Á áttundu öld fyrir Krist sigruðu Assýringar norðurríkið Ísrael og lögðu undir sig, en suðurríkið Júdea hélt velli, með Jerúsalem sem höfuðborg. Babýloníumenn réðust síðan að Júdeu á sjöttu öldinni, eyðilögðu musterið í Jerúsalem og herleiddu Júdeumenn. Þegar Persar náðu yfirráðum yfir svæðinu var Júdeumönnum gert kleift að snúa aftur. Næstir til að hertaka svæðið voru grískumælandi en á þeirra valdaskeiði náðu Gyðingar í Júdea um tíma að öðlast sjálfstæði, þangað til Rómverjar loks náðu svæðinu undir sig undir lok fyrstu aldar fyrir Krist. Á tíma Jesú ríkti hatur á milli Samverja og Júdeumanna og átti það hatur rætur í hernámi og sjálfstæðisbaráttu svæðanna. Júdeumenn litu þannig á að Samverjar hefðu blandast eftir innrás Assýringa, að þeir hefðu óhreinkast með því að þeir „dýrkuðu Drottin en þjónuðu einnig sínum eigin guðum að siðum þjóðanna sem þeir höfðu verið fluttir í útlegð frá“ (2 Kon 17.33). Þá buðu Samverjar aðstoð við að endurreisa musterið í Jerúsalem eftir endurkomuna úr herleiðingunni: „Við viljum byggja með ykkur því að við leitum til Guðs ykkar eins og þið“; en Júdeumenn höfnuðu því boði með orðunum: „Þið getið ekki verið með okkur um að reisa Guði okkar hús. Við ætlum einir að reisa Drottni, Guði Ísraels, hús“ (Esr 4.2, 3). Samverjar höfnuðu því að vera óhreinir og töldu sig einmitt endurspegla hinn upphaflega átrúnað sem haldist hafði í landinu. Þeir lögðu Mósebækurnar til grundvallar trú sinni, dýrkuðu Guð við Gerasímfjall og höfðu þar sitt eigið musteri, sem Júdeumenn eyðilögðu á sjálfstæðisskeiðinu um 150 fyrir Krist (Jósefus, Ant. 13.9). Samverjar og Gyðingar voru því í grunninn sama þjóð með sömu trúarhefð, en höfðu ólíka sögutúlkun og ólíka útleggingarhefð. Hatrið náði svo langt að gyðinglegir áheyrendur dæmisögunnar forðuðust að ferðast í gegnum Samaríu, lögðu frekar á sig að ferðast yfir vesturbakkann til að þurfa ekki að eiga samskipti við Samverja, máttu ekki borða mat þeirra og ekki deila vatnsbóli með þeim. Í Mishna bókum hins gyðinglega Talmúð er tekið fram að „sá sem etur brauð Samverja er líkur þeim er etur svínakjöt“ (M. Shevi‘it 8.10) og í Jóhannesarguðspjalli drekkur Jesús vatn með samverskri konu sem minnir hann á að „Gyðingar hafa ekki samneyti við Samverja“ (Jóh 4.9). Loks er Jesús hrakyrtur í sama guðspjalli og uppnefndur „Samverji“ sem hefur „illan anda“ (8.48), en verri gerast ávirðingarnar ekki. Miskunnsami Samverjinn Dæmisagan af miskunnsama Samverjanum hefur því aðalpersónu sem áheyrendum ber að hata, fyrirlíta og forðast, og það samhengi gerir söguna sláandi og hneykslanlega. Fyrir nútímalesendur er Samverjinn sá sem þú hatar og vilt forðast samneyti við, hvar sem andúðin er mest. Þess má geta að Samverjar eru enn til sem þjóðernisbrot og trúarhefð og eru flestir þeirra búsettir í Ísrael eða á Vesturbakkanum. Fjöldi þeirra nær ekki þúsund manns. Í sögunni koma jafnframt fyrir prestur og levíti, en þeir eru táknmyndir fyrir afkomendur Aarons og Leví, Júdeumenn, sem og klerkar sem héldu sig frá öllu því sem óhreinkaði þá, þar með talið opin sár á slösuðum manni. Í sögunni er því jafnframt að finna ádeilu á trúarleiðtoga sem telja sig of góða til að óhreinka hendur sínar í þágu þeirra sem eiga um sárt að binda. Sagan er í eðli sínu einföld en Jesús er að svara grundvallarspurningu, frá lögvitringi sem vildi freista Jesú. „Meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“. Jesús fær hann til að fara með tvöfalda kærleiksboðorðið, „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig,“ og í kjölfarið spyr maðurinn, „Hver er þá náungi minn?“. Því svaraði Jesús svo: „Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. Þeir flettu hann klæðum og börðu hann, hurfu brott síðan og létu hann eftir dauðvona. Svo vildi til að prestur nokkur fór ofan sama veg og sá manninn en sveigði fram hjá. Eins kom og Levíti þar að, sá hann og sveigði fram hjá. En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum og er hann sá hann kenndi hann í brjósti um hann, gekk til hans, batt um sár hans og hellti í þau viðsmjöri og víni. Og hann setti hann á sinn eigin eyk, flutti hann til gistihúss og lét sér annt um hann. Daginn eftir tók hann upp tvo denara, fékk gestgjafanum og mælti: Lát þér annt um hann og það sem þú kostar meira til skal ég borga þér þegar ég kem aftur. Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni sem féll í hendur ræningjum?“ Hann mælti: „Sá sem miskunnarverkið gerði á honum.“ Jesús sagði þá við hann: „Far þú og ger hið sama.“ Höfundur er prestur við Vídalínskirkju í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurvin Lárus Jónsson Mest lesið 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun Hvað þarf til að verða sjúkraliði? Sandra B. Franks Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo Skoðun Að segja „JÁ“ snýst um sanngirni og framþróun Nichole Leigh Mosty Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Að segja „JÁ“ snýst um sanngirni og framþróun Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun „Lýðræðisveisla“ sem skaðar lýðræðið. Forsetinn er á matseðlinum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hernaðarheilkenni Heimssýnar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Hvað þarf til að verða sjúkraliði? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Flýtum tvöföldun Vesturlandsvegar – í þágu umferðaröryggis Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson skrifar Skoðun Sjálfbært laxeldi á Íslandi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Þau læra það börnin sem fyrir þeim er haft Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Sjá meira
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun
Skoðun Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flýtum tvöföldun Vesturlandsvegar – í þágu umferðaröryggis Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson skrifar
Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun