Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. apríl 2026 12:02 Frank Lampard hefur sannað sig fyrir stuðningsmönnum Coventry sem efuðust stórlega um ráðninguna. Freddie Yeo/MB Media/Getty Images Coventry getur tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið mætir Blackburn Rovers.
Eitthvað mikið þarf að fara úrskeiðis svo Coventry stígi ekki upp í úrvalsdeildina. Liðið þarf aðeins eitt stig úr síðustu fjórum leikjum tímabilsins. Sigur eða jafntefli gegn liðsfélögum Andra Lucasar Guðjohnsen hjá Blackburn myndi því duga í kvöld. Coventry var síðast í úrvalsdeildinni fyrir aldarfjórðungi síðan, tímabilið 2000-01. Síðan þá hefur liðið gengið í gegnum djúpa dali, alla leið niður í D-deildina. Á þeim tíma varð félagið heimilislaust, því það hafði ekki lengur efni á leigu heimavallarins, og þurfti að leita á náðir nágrannaliða í Birmingham og Northampton til að spila heimaleiki. Þau vandamál eru þó ekki lengur til staðar og liðið leikur sína heimaleiki í Coventry. Frank Lampard tók við stjórnartaumunum hjá Coventry árið 2024. Ráðningin var ekki vinsæl meðal stuðningsmanna sem sáu mikið á eftir Mark Robins. Lampard hefur hins vegar tekist að vinna sig á band stuðningsmanna með góðum árangri. Þetta er fimmta þjálfarastarfið sem Lampard tekur að sér síðan skórnir fóru á hilluna. Hann náði góðum árangri með Derby County en mistókst að vinna umspilið um sæti í úrvalsdeild þar. Honum tókst síðan ekki að festa sig í sessi hjá Chelsea eða Everton en allt stefnir í að Lampard leiði Coventry upp í ensku úrvalsdeildina.
Enski boltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira