Formaður Kennarasambandsins segi ósatt Eiður Þór Árnason skrifar 16. apríl 2026 23:58 Inga Sæland er barna- og menntamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Barna- og menntamálaráðherra segir það rangt að formaður Kennarasambands Íslands (KÍ) hafi fyrst heyrt af fyrirhuguðum breytingum hennar á námsmatskerfi grunnskóla á þingi KÍ í gær. Þær fyrirætlanir að hverfa frá notkun bókstafa við námsmat hafa reynst umdeildar meðal kennara. „
Elsku vinur minn, Magnús Þór, sagði í fréttum RÚV í gærkvöldi að hann hefði verið að frétta af þessu með einkunnagjöfina hjá mér í ræðunni í gærmorgun. Það er ósatt, ósatt með öllu. Hann var algjörlega fullmeðvitaður um það sem ég er að hugsa, algjörlega,“ sagði Inga Sæland í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Kveðst hún hafa rætt málið við hann áður. „Hann veit nákvæmlega hvert hugur minn hefur stefnt. Nákvæmlega.“ Fram hefur komið að sumir kennarar hafi gengið úr salnum á meðan ráðherra flutti ræðu sína á þingi Kennarasambandsins í gær og lýsti formaðurinn yfir gríðarlegum vonbrigðum með orð ráðherra á sama vettvangi. Í ályktun sem þing Kennarasambandsins samþykkti í dag er lýst „yfir alvarlegum áhyggjum af framgöngu mennta- og barnamálaráðherra og þeim viðhorfum sem hann hefur sýnt í garð skólasamfélagsins og þeirrar fagþekkingar sem menntakerfið byggir á.“ „Stefnumörkun á grundvelli popúlískra, pólitískra slagorða er hvergi líkleg til árangurs,“ segir þar jafnframt. Þá kölluðu kennarar eftir „breyttum vinnubrögðum, meiri vandvirkni og nýjum tóni í stefnumörkun stjórnvalda og samskiptum við skólasamfélagið.“ Klippa: Segist hafa fundið mikinn stuðning frá kennurum Ekki séð neinn ganga út Inga segist ekki hafa orðið vör við það að einhverjir kennarar hafi gengið út úr salnum á meðan hún flutti erindi sitt í gær. „Ég er nú svo heppin stundum að vera sjónlaus, þannig að ég tek ekkert eftir því hvort fólk er að koma eða fara. Ég bara stend þarna bara og segi það sem mér býr í brjósti og ég kom til þess að segja.“ „Þeir verða bara að halda áfram að vera sárir“ Inga sat í dag vinnustofu með ungmennum um símanotkun í skólum og aðgang þeirra að samfélagsmiðlum en til stendur að banna snjallsímanotkun í grunnskólum landsins. Við heyrðum það í gær að kennarar eru eitthvað sárir yfir því að vera ekki með í ráðum varðandi þetta. „Já, þeir verða bara að halda áfram að vera sárir greyin vegna þess að ég verð nú að viðurkenna það að það er bara einfaldlega þannig að það er ótrúlegt en það virðist ekki mega nefna neitt á sviði menntamála án þess að hluti af einmitt forystu kennara sjái því allt til foráttu og mig langar að nefna nokkur dæmi svona að gamni ef þið viljið heyra.“ Nefnir Inga þá PISA-könnunina, einkunnaskalann, birtingu einkunna, fjölda kennsludaga, kostnaðinn við rekstur menntakerfisins, lestraraðferðir, lengd kennaranáms, tilkoma sameiginlegs leyfisbréfs fyrir öll skólastig, fjarnám, fjölda námsbrauta, skóla án aðgreiningar. „Og jafnvel vilja sumir ekki einu sinni að stjórnvöld fari að skipta sér af því hvort að börnin séu með síma í skólunum.“ Aðspurð hvort kennarar hafi ekki einfaldlega verið að kalla eftir auknu samráði við stjórnvöld nefnir Inga að fulltrúar Kennarasambandsins hafi verið með fulltrúa í svokölluðum spretthópum um skólamál sem hófu störf í febrúar. Þá hafi hún nokkrum sinnum hitt Magnús formann sem Inga lýsir sem „okkar elskulega kjarabaráttumeistara Kennarasambandsins.“ „Þannig að það er ekkert sem að ég myndi segja að hefði ekki verið í samtali, fyrir utan það að ég elska kennarastéttina út af lífinu og finnst þau vera mikilvægasta stéttin í heiminum og án þeirra þá ættum við afskaplega litla möguleika.“ Inga segir að námsárangur íslenskra barna sé óviðunandi og þörf á að gera betur. „Ég mun aldrei verða sá menntamálaráðherra sem sit hér og horfi á hlutina fara niður á við, alls ekki. Ég er komin sem verkfæri til þess að reyna að snúa þessari óheillaþróun við. Ég rétti fram hendur til kennara, ég bið um stuðning, ég bið um hjálp og þeirra fallega hjarta, því ég veit að við getum gert svo miklu, miklu betur.“ Hún hafi einnig fundið fyrir stuðningi og góðum undirtektum frá mörgum kennurum. „Ég er að fá alveg ofboðslega jákvæðar og góðar undirtektir og miklar áskoranir og kærleika og ég er bara umvafin í því. Þannig að það er það sem að fleytir manni áfram að gefast aldrei upp og ég ætla mér að vinna verk mín að vanda hér eftir sem hingað til. Ég mun gera allt fyrir börnin okkar og þeirra framtíð, allt sem í mínu valdi stendur." Bókstafakerfið sé áskorun fyrir nemendur Inga segir ríkjandi einkunnakerfið í grunnskólum sem byggi á bókstöfum sé áskorun fyrir foreldra, nemendur og þegar kemur að því að útskrifa börn úr tíunda bekk. „Þetta er algjör óskýrleiki sem felst í þessu bókstafakerfi. Það er ekkert gagnsæi, foreldrar gera sér enga grein fyrir því hvar börn raunverulega eru stödd frekar en þau sjálf. Skólameistarar framhaldsskólanna verða að byrja á því þegar þessi ungmenni eru að koma upp í framhaldsskólann að umbreyta þessu bókstafakerfi yfir í talnakerfið og annað slíkt.“ Formaður Kennarasambandsins hefur sagt að ekki sé um að ræða auðvelda kerfisbreytingu heldur væri þetta mikil breyting á vinnulagi kennara. Inga hyggst síðar meir ráðast í heildstæða endurskoðun á aðalnámskrá. „Ég vona að vinir mínir í KÍ séu tilbúnir að taka utan um það verkefni með mér.“
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira