Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar 16. apríl 2026 22:31 Þann 10. nóvember 2023 var Grindvíkingum skotið út í geim. Ekki með undirbúningi. Heldur inn í algjöra óvissu. Síðan þá höfum við spurt: hvenær koma þau aftur heim? En kannski er stærri spurningin sú hvort við séum enn í sambandi við þau.Eða hvort við, hér á jörðinni, höfum einfaldlega misst tenginguna? Á undanförnum dögum hafa verið kynntar ýmsar skýrslur, áætlanir og framtíðarsýn. Þar er margt sem gefur tilefni til bjartsýni. Skýr vilji til uppbyggingar, metnaður til að gera betur og viðurkenning á því að verkefnið er bæði flókið og fordæmalaust. Verkefnið okkar í dag snýst ekki um að bíða eftir hinu fullkomna logni, heldur um það sem Alþjóðabankinn kallar „stýrða sambúð við eldfjallaáhættu“. Grindavík er orðin að rannsóknarstofu í því hvernig samfélag lærir að lifa, starfa og dafna í návígi við virka náttúru. Í öllum þessum gögnum er talað um að traust sé forsenda. Að þátttaka auki líkur á árangri. Að lausnir sem vaxa upp úr samfélaginu sjálfu standi lengur og skapi sterkari framtíð. En samt situr eitthvað eftir. Tilfinning um að við séum stundum enn að tala um Grindvíkinga – frekar en við þau. Grindavík hefur, eins og bent var á á vorfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum nýlega, orðið að opinni tilraunastofu. Rauntímatilraun í því hvernig samfélag bregst við þegar það er rifið upp með rótum. Við erum að læra mikið og það er dýrmætt. En það sem gerir þessa „tilraun“ einstaka eru ekki gögnin heldur fólkið. Því þó við getum greint, reiknað og skipulagt, þá er eitt sem við getum ekki gert: Við getum ekki túlkað upplifun þeirra sem fóru í gegnum þessa lífsreynslu. Til þess að atvinnulífið og samfélagið (án grunnskólabarna í bili) geti tekið skrefin fram á við þarf að setja leikreglur sem fólkið trúir á. Vonbrigði margra snúa að áhættumatinu; tilfinningunni um að því sé þröngvað yfir samfélagið án samtals. Hér leggur Alþjóðabankinn til eina jákvæðustu og mikilvægustu kerfisbreytinguna: Þátttökunálgun í áhættumati. Ákvarðanir um framtíðina eiga ekki aðeins að vera í höndum sérfræðinga. Grindvíkingar, atvinnulíf og stjórnvöld eiga að setjast saman og skilgreina í sameiningu hvað telst „ásættanleg áhætta“. Fólkið sjálft á að fá að ræða málamiðlanirnar og móta skýra „Ef-Þá“ ferla. Með þessu getum við innleitt sveigjanlegri rekstrarnálgun fyrir atvinnulífið – svo bærinn geti iðað af lífi yfir daginn – þótt strangar reglur gildi um búsetu, í bili. Þessi valdefling er þegar hafin. Við þurfum ekki að leita langt yfir skammt til að sjá nákvæmlega þann grasrótarkraft sem Alþjóðabankinn kallar eftir. Verkefnið Saman í sókn er lifandi sönnun þess. Þar komu tæplega 30 leiðtogar úr grindvísku atvinnulífi saman, færðu sig úr varnarstöðu yfir í sóknarhugsun og drógu upp skýra framtíðarsýn til ársins 2030. Þau ákváðu að taka ábyrgðina og móta eigin forgangsverkefni, sem byggja á nýsköpun, seiglu og samstarfi, sem mun standa undir nýrri og enn sterkari Grindavík. Þar liggja tækifærin og þarna höldum við áfram. Ekki bara í því að endurreisa það sem var. Heldur í því að byggja eitthvað sem er enn sterkara með þeim sem ætla sér að byggja upp og flytja aftur heim. En þá þurfum við að þora að færa stjórnina nær fólkinu. Því það sem fer kannski verst í Grindvíkinga er ekki óvissan ein og sér heldur að fá ekki að ráða eigin skrefum innan hennar. Að geta ekki sjálf tekið ákvörðun um að snúa heim með börnin sín. Að samfélagið fái ekki að hefja eigin endurreisn af fullum krafti, vegna þess að grunnstoðir eins og skólar eru ekki opnaðir og án fjölskyldna byggist ekkert samfélag upp. Fjölskyldur eru ekki bara hluti af samfélagi – þær eru límið. Þær skapa taktinn, menninguna, lífið á milli húsanna. Án þeirra verða byggingar bara mannvirki og samfélag bara í hálfum takti. Kannski er það líka einmitt það sem skýrslurnar eru, þegar allt kemur til alls, að benda okkur á: Að byggja upp traust með því að deila ábyrgð.Að styrkja samfélag með því að gefa því raunverulegt vald.Að hlusta ekki bara – heldur leyfa röddum að hafa áhrif. Því þetta snýst ekki um að ná þeim “aftur”. Þau eru ekki týnd á bakvið tunglið. En við þurfum að tryggja að við séum enn í sambandi. Það samband byggist á einu:Að tala við fólk – ekki um það. 💛 Höfundur er framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans og verkefnastjóri Grindavík, Saman í sókn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar