Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar 16. apríl 2026 15:16 Það eru vondar fréttir fyrir okkur hér á Suðurnesjum að ríkið sé búið að setja viðbyggingu við Fjölbrautarskóla Suðurnesja á ís. Það halda því engin rök að fresta uppbyggingu bæði hvað varðar mikla fjölgun nemenda undanfarin ár, samhliða fólksfjölgun, og þróun atvinnumála á svæðinu. Sterkur framhaldsskóli er nefnilega lykilþáttur í atvinnuuppbyggingu. Hann menntar íbúa svæðisins, styrkir hæfni atvinnulífsins og skapar jafnframt störf fyrir háskólamenntað fagfólk. Svæði sem hafa öfluga menntainnviði eru einfaldlega betur í stakk búin til að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf. Á Suðurnesjum hefur Fjölbrautaskóli Suðurnesja gegnt lykilhlutverki í áratugi. Skólinn hefur menntað þúsundir ungmenna og verið einn mikilvægasti innviður svæðisins. En staðan í dag er nefnilega alvarleg. Húsnæði skólans er löngu sprungið og nemendafjöldi hefur aukist hratt. Samhliða því hafa framlög á hvern nemanda verið mun lægri en í mörgum öðrum framhaldsskólum landsins. Slík mismunun er einfaldlega ekki ásættanleg enda vanvirðing við ungmenni og starfsfólk skólans. Samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla á framhaldsskóli að efla þekkingu, sjálfstæða hugsun og samfélagslega ábyrgð. Til þess þarf öflugt námsumhverfi, fagfólk og aðstæður sem gera skólanum kleift að sinna hlutverki sínu. Þegar skóli er yfirfullur og fjármagn takmarkað er augljóst að þessi markmið náist ekki til fulls. Þrátt fyrir þessar aðstæður hefur Fjölbrautaskóli Suðurnesja náð eftirtektarverðum árangri. Þar hefur verið unnið markvisst að því að draga úr brotthvarfi úr námi og styðja nemendur með ólíkan bakgrunn og þarfir. Sá árangur er virðingarverður og ber vitni um fagmennsku starfsfólks og sterka skólamenningu. Við megum heldur ekki gleyma því að ungmenni í fyrstu árum framhaldsskóla eru enn börn í lagalegum skilningi. Samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna ber stjórnvöldum að tryggja að börn og ungmenni fái þann stuðning sem þau þurfa til að dafna. Framhaldsskólinn er því mikilvægur vettvangur í farsæld barna, ekki síður en leik - og grunnskólinn. Þess vegna verður ríkið að bregðist við og breyta þessari ákvörðun. Suðurnes eiga ekki að þurfa að sætta sig við lakari aðstæður eða minni framlög en aðrir landshlutar. Fjölgun íbúa á svæðinu kallar á öfluga uppbyggingu framhaldsskólamenntunar en ekki því að ráherra hundi svæðið einu sinni enn. Höfundur er menntunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar