„Það sem þær fengu var svolítið það sem við gáfum þeim“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 14. apríl 2026 21:13 Guðrún Arnardóttir gegn Úkraínu í kvöld. Pawel Cieslikiewicz Íslenska kvennalandsliðið sigraði Úkraínu 1-0 í kvöld í undankeppni HM. Guðrún Arnardóttir var að vonum ánægð með frammistöðu liðsins en hefði viljað sjá fleiri mörk. „
Við sköpuðum færi en hefðum kannski getað skorað meira. Það sem þær fengu var svolítið það sem við gáfum þeim útfrá okkar mistökum,“ sagði Guðrún eftir leik. Ísland hins vegar stjórnaði leiknum nánast allan tímann og það var því ekki mikið að gera varnarlega hjá íslenska liðinu. „Boltinn rúllaði hratt og við bjuggumst kannski við þeim aðeins meira aggressívari en þær voru. Þetta gekk fínt þegar við héldum rónni og héldum í boltann og vorum að skipta á milli kanta.“ Íslenska liðið gerði vel sóknarlega og fengu heilmikið af færum en tókst því miður ekki að bæta við fleiri mörkum. „Við fengum færi í fyrri hálfleik þar sem við fengum marga krossa inn og það þurfti bara að ná að reka tánna í boltann og setja hann inn. Það var því rosalega gott að koma út í seinni og fá markið því við ætluðum okkur sigur. Hefði þó jafnvel viljað fá fleiri.“ Ísland mætir enska landsliðinu næstkomandi laugardag á Laugardalsvelli. Sá leikur verður að eitthverju leyti nokkuð frábrugðin þeim leik í kvöld gegn Úkraínu. „Það verður hörku leikur en ég held að við séum búin að læra heilmikið úr síðasta Englands leik. Við ætlum að reyna að gera þeim svolítið erfitt fyrir. Við vorum í ágætis séns í síðasta leik lengi vel, við vorum 1-0 undir og Sandra átti skalla sem var varinn vel. Við erum því alveg með tækifæri og ef við stígum aðeins upp í að halda í boltann og aðeins aggressívari í varnarleiknum þá held ég að við eigum alveg möguleika. Við ætlum inn í þennan leik til þess að fá eitthvað út úr honum.“ „Á móti Englandi erum við meira í varnarfærslunum en við verðum líka að ná að þora að halda í boltann þegar við vinnum hann. Það er kannski okkar challenge á móti bestu liðunum að við séum ekki hræddar við að halda í boltann og skapa eitthvað úr því þegar við fáum tækifæri til þess.“
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Sjá meira