„Ég var mjög skrítinn krakki“ Stefán Árni Pálsson skrifar 14. apríl 2026 11:00 Pétur segist hafa verið skrítinn krakki en er í dag listamaður á mikilli uppleið. Pétur Geir Magnússon er einn efnilegasti listamaður landsins og hefur gert sér gott nafn sem frumlegur myndlistarmaður sem fer óhefðbundnar leiðir í sinni sköpun. Með bakgrunn í grafík sérhæfir hann sig í gerð lágmynda og skúlptúra.
Tómas Arnar fékk tækifæri til að kíkja í heimsókn á vinnustofu listamannsins þar sem hann var í óðaönn að gera allt tilbúið fyrir sýningu á sínum nýjustu verkum. Tómas ræddi við hann í Ísland í dag á Sýn í gærkvöldi. Sýningin ber heitið Negatívur og þar gefst fólki tækifæri til að heimsækja listamanninn, sjá vinnuaðstöðu hans og 26 splunkunýjar lágmyndir. „Það er ekki oft sem maður er með heilan myndavegg fyrir sjálfan sig, en það gerist svona rétt fyrir sýningar. Það er virkilega ánægjulegt. Þegar ég var 10 ára ákvað ég að ég ætlaði að verða arkitekt,“ segir Pétur sem fór aðra leið. Meikaði sens „Mér fannst það svona bara meika sens. Og mér fannst rými rosalega heillandi og var alltaf að pæla í rýmum. Ég var mjög skrítinn krakki sko og var alltaf að teikna í þrívídd og búa til eitthvað rými. Ég hef alltaf verið mjög kreatívur. Ég var í dansi sem krakki og elskaði alltaf að teikna. Svo fór ég yfir í vídeógerð og sketsagerð og svo leiklist og allt þetta einhvern veginn svona blandaðist saman. Manni fannst alltaf svo gaman að búa eitthvað til og skapa eitthvað.“ Pétur hefur alltaf verið skapandi en fyrst hann minnist á vídeógerð þá má nefna að maðurinn er hálfgerð goðsögn í Verslunarskólanum. Þar gerði hann garðinn frægan í söngleikjum og með myndbandsnefndinni Rjómanum í upphafi gullaldar menntaskólamyndbandsgerðar. Í menntaskóla fór Pétur einnig að prófa sig áfram með forrit líkt og Photoshop og fleira. Og ástríða fyrir grafík fór að gera vart við sig og förinni haldið í Listaháskólann. Seldi allt upp „Svo þegar maður svona hélt áfram í grafíkinni, þá fór ég í skiptinám hérna til Amsterdam í Rietveld-akademíunni. Ég fékk eiginlega bara svona tiltal frá einum kennara, sem bara var að segja, Pétur þú veist að grafík er bara hagnýt myndlist.“ Hann segir það þó hafa verið ógnvænlegt að stefna á að lifa á listinni sem áður hafi verið fjarlægur draumur. „Ég var alveg grafískur hönnuður í nokkur ár og hélt síðan svona mína fyrstu sýningu eftir að hafa verið hérna með vinnustofu á Bræðraborgarstíg. Ég var búinn að vera að þróa þessar lágmyndir. Þetta var eiginlega bara framhald af útskriftarverkinu mínu. Þá ákveð ég að halda smá sýningu og sýna fólki þetta. Svo seldist sú sýning upp,“ segir Pétur. Pétur stendur fyrir listasýningu um þessar mundir en sýningin stendur til 19. april og er við Bæjarhrauni 24 í Hafnarfirði. Fólk getur fylgst með honum á peturgeir.is eða á instagram undir reikningnum @petgmag.
Ísland í dag Menning Myndlist Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Fleiri fréttir Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Sjá meira