„Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. apríl 2026 16:08 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Einar Forstjóri Icelandair segir að verklag og reglugerðir verði áréttaðar við starfsfólk flugfélagsins eftir að reyndur flugstjóri ákvað án samráðs við flugfélagið að fljúga í lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn. Málið er á borði lögreglu.
Flugvél Icelandair í farþegaflugi frá Frankfurt flaug lágflug yfir Vestmannaeyjar á laugardaginn fyrir lendingu á Keflavíkurflugvelli. Flugfélagið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna flugsins. „Icelandair vill koma á framfæri að lágflugið var hvorki á vitorði né með heimild stjórnenda félagsins. Samgöngustofa hefur tekið málið til rannsóknar. Lög og reglugerðir sem gilda um flug eru settar í öryggisskyni og ber starfsfólki Icelandair sem og félaginu skylda til að fara eftir þeim í hvívetna. Ábyrgðarmenn félagsins tilkynntu atvikið til Samgöngustofu og lögreglu um leið og upplýsingar bárust um það eins og þeim er skylt að gera,“ segir í yfirlýsingunni. Félagið muni ekki tjá sig nánar um málið á meðan á rannsókn stendur. „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum. Atvikið hefur verið tekið til rannsóknar og mun sú rannsókn leiða frekari niðurstöður í ljós. Við munum að sjálfsögðu aðstoða yfirvöld við þá rannsókn. Þó að við lítum svo á að um stakt tilfelli sé að ræða munum við árétta við okkar starfsfólk það verklag og reglugerðir sem því ber ávallt skylda að fylgja,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Icelandair Fréttir af flugi Vestmannaeyjar Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira