Littler útskýrir af hverju hann kallaði Van Veen grenjuskjóðu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2026 14:04 Luke Littler var ekki sáttur með Gian van Veen í viðureign þeirra á dögunum. getty/Peter Byrne Heimsmeistarinn Luke Littler segir að Gian van Veen hafi gefist upp í leik þeirra í úrvalsdeildinni í pílukasti. Þess vegna hafi hann kallað hann grenjuskjóðu.
Littler og Van Veen mættust á níunda keppniskvöldi úrvalsdeildarinnar í byrjun þessa mánaðar. Littler fagnaði þegar Van Veen mistókst að tryggja sér sigurinn í viðureigninni sem Hollendingurinn tók óstinnt upp. Littler tókst sjálfum ekki að klára leikinn en sýndi síðan „væluskjóðu“ látbragð út í salinn. Á endanum tryggði Van Veen sér sigurinn og eftir leikinn sagði hann Littler hafa sýnt sér dónaskap. Hinn nítján ára Littler hefur nú tjáð sig um uppákomuna í leiknum á keppniskvöldinu í Manchester. „Það sem fólk sá ekki var að þegar ég labbaði til baka horfði ég áfram í áttina að áhorfendum og sá að hann hafði sett pílurnar sínar niður. Aðrir sáu það ekki,“ sagði Littler. „Hann er sá sem gerði ekki sitt, að sýna virðingu. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem ég sé einhvern leggja pílurnar sínar niður fyrir framan mig. Ég hugsaði bara: Af hverju? Ég kallaði hann grenjuskjóðu því það var engin ástæða fyrir hann að setja pílurnar niður. Þegar hann vann tók ég pílurnar mínar og óskaði honum til hamingju.“ Littler vann sigur á áttunda keppniskvöldi úrvalsdeildarinnar en hefur ekki komist áfram úr átta manna úrslitunum á síðustu tveimur keppniskvöldi. Næsta keppniskvöld fer fram í Rotterdam á fimmtudaginn og þar gætu Littler og Van Veen mæst í undanúrslitum. Littler er í 2. sæti úrvalsdeildarinnar með 21 stig, þremur stigum á eftir Jonny Clayton. Van Veen er fimmti með tólf stig.
Pílukast Tengdar fréttir Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Pílukastaranum Gian van Veen segist vera alveg sama hvað heimsmeistaranum Luke Littler finnst um sig. Þeim lenti saman á keppniskvöldi í úrvalsdeildinni í pílukasti í fyrradag. 4. apríl 2026 10:30 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira
Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Pílukastaranum Gian van Veen segist vera alveg sama hvað heimsmeistaranum Luke Littler finnst um sig. Þeim lenti saman á keppniskvöldi í úrvalsdeildinni í pílukasti í fyrradag. 4. apríl 2026 10:30