Fótbolti

Bein út­sending: Þor­steinn og Glódís sitja fyrir svörum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir og Þorsteinn Halldórsson svara spurningum blaðamanna fyrir leikinn mikilvæga gegn Úkraínu.
Glódís Perla Viggósdóttir og Þorsteinn Halldórsson svara spurningum blaðamanna fyrir leikinn mikilvæga gegn Úkraínu. vísir/anton

Vísir er með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik Íslands og Úkraínu í undankeppni HM 2027 í fótbolta kvenna.

Fundurinn hefst klukkan 12:45 en beina útsendingu frá honum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson og landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir sitja fyrir svörum á fundinum.

Leikur Íslands og Úkraínu fer fram á Laugardalsvelli klukkan 18:30 annað kvöld.

Ísland og Úkraína eru bæði án stiga í riðli 3 í undankeppninni. England og Spánn eru með sex stig hvort lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×