Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lovísa Arnardóttir skrifar 13. apríl 2026 07:52 Fangelsið á Hólmsheiði var opnað árið 2016. Það er yfirfullt og erfitt að gæta öryggis samkvæmt yfirlýsingu Fangavarðafélags Íslands. Vísir/Vilhelm Stjórn Fangavarðafélag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af yfirfullum fangelsum. Erfiðara sé að tryggja öryggi fanga og starfsfólks og halda uppi eðlilegri þjónustu. Dæmi séu um að fjórtán fangar dvelji á deild fyrir átta og að fangar þurfi að dvelja í einangrun eða á lögreglustöðvum langtímum við ófullnægjandi aðstæður.
Í yfirlýsingu frá félaginu segir að síðustu misseri hafi öll fangelsi landsins, lokuð öryggisfangelsi jafnt og opin fangelsi, verið gert að nýta alla lausa klefa og nýting plássa hefur verið nær stöðugt nálægt hundrað prósentum. „Löng biðröð hefur myndast um að nýta hvert laust klefapláss og ekki hefur verið unnt að verða við beiðnum lögreglu um að taka við síbrotamönnum og öðrum sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald, sem verður til þess að einstaklingum sé sleppt úr haldi lögreglu eða að þeir þurfi að dvelja langtímum í fangaklefum á lögreglustöðvum við ófullnægjandi aðstæður,“ segir í yfirlýsingunni. Biluð kallkerfi og lítið pláss Þar segir að í fangelsinu á Hólmsheiði séu dæmi um að vista þurfi almenna fanga dögum eða vikum saman í einangrunarklefum yfir nætur þar sem ekki er pláss fyrir þá á almennum deildum. Á daginn séu slíkir fangar vistaðir á almennum deildum sem eru þegar fullskipaðar. Dæmi séu um að tólf til fjórtán manns séu vistaðir á deildum sem eru hugsaðar fyrir átta fanga. Þá séu einnig dæmi um að fangar í báðum lokuðu fangelsunum, á Hólmsheiði og Litla-Hrauni, séu vistaðir í klefum þar sem kallkerfi eru ónothæf eða biluð. Stjórn félagsins fullyrðir í yfirlýsingu sinni að fangelsiskerfið á Íslandi sé algjörlega komið að þolmörkum þegar kemur að getu starfsfólks til að viðhalda öryggi og eðlilegri þjónustu innan fangelsanna. Geta ekki brugðist við deilum „Streita og álag er mikið hjá bæði fangavörðum og föngum og geta fangavarða til að bregðast við illdeilum og erjum meðal fangahópsins er verulega skert þegar ekkert svigrúm er til að flytja fanga milli staða,“ segir í yfirlýsingunni. Stjórnin telur að stjórnvöld „fljóti sofandi að feigðarósi“ verði ekki brugðist við þessu ástandi með tafarlausum aðgerðum til að fjölga fangaplássum og bæta aðbúnað og mönnun í fangelsunum.
Fangelsismál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira