Minnkandi vindur og stöku él Atli Ísleifsson skrifar 10. apríl 2026 07:09 Hiti verður yfirleitt á bilinu núll til fimm stig yfir daginn. Vísir/Vilhelm Dagurinn í dag byrjar með minnkandi vindi og stöku éljum á víð og dreif. Það mun létta til á norðanverðu landinu, en einnig sunnanlands eftir hádegi.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það verði suðlæg átt, þrjú til átta metrar á sekúndu og léttskýjað seint í dag. Hiti verður yfirleitt á bilinu núll til fimm stig yfir daginn. „Hæg norðlæg átt í nótt. Dálítil él á norðvestanverðu landinu, en stjörnubjart að mestu í öðrum landshlutum. Á morgun er lægð komin norðvestur af Írlandi. Vaxandi norðaustanátt hérlendis, 10-18 m/s undir kvöld, en aðeins hvassara í vindstrengjum á Suðausturlandi. Stöku él eða slydduél á norðan- og austanverðu landinu, en annars léttskýjað. Skil nálgast landið eftir hádegi og þá byrja að snjóa fyrir austan, en slydda eða rigning á lálendi. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast undir Eyjafjöllum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Vaxandi norðaustan- og norðanátt, 10-18 m/s undir kvöld, en sums staðar hvassari suðaustantil. Snjókoma eða slydda á austanverðu landinu síðdegis, lítilsháttar él norðantil, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, mildast syðst. Á sunnudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10, en norðan 10-18 á vestanverðu landinu fram undir kvöld. Allvíða snjókoma eða slydda fyrir hádegi, en úrkomulítið sunnanlands. Dregur úr úrkomu síðdegis, en aftur snjókoma eða slydda austanlands um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt 5-10, en 10-15 norðvestantil. Él eða slydduél, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast sunnantil. Á þriðjudag: Norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil snjókoma eða slydda, en þurrt að mestu inn til landsins. Hiti svipaður áfram. Á miðvikudag: Austan- og norðaustanátt og skýjað. Rigning eða snjókoma, en úrkomulítið norðantil fram á kvöld. Hiti 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Útlit fyrir breytilega átt. Allvíða rigning eða slydda með köflum. Norðanátt með éljum og kólnandi veðri um kvöldið en styttir upp sunnan heiða.
Veður Mest lesið Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Innlent Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Innlent Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Innlent Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Innlent Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals Innlent Fleiri fréttir Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Rigning öðru hverju Sjá meira
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent