Hvað er heit vinna? Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar 7. apríl 2026 08:47 Heit vinna telst vera hvers konar vinna þar sem unnið er með opinn eld eða annan hitagjafa, s.s. logskurðarverkfæri, logsuðu, rafsuðu, heitt loft, gasloga og fleira sambærilegt. Þessi vinna er algeng í byggingariðnaði eins og við lagningu þakdúks og á hinum ýmsu verkstæðum þegar verið er að logsjóða og skera með loga. Alvarlegar afleiðingar heitrar vinnu Reynslan sýnir að afleiðingar út frá heitri vinnu geta verið gríðarlega alvarlegar. Nýlegt dæmi er Kringlubruninn sem er mörgum í fersku minni. En það eru ekki bara eignir sem geta skemmst í bruna heldur erum við líka að tala um alvarleg slys á fólki og jafnvel andlát. Góður undirbúningur gríðarlega mikilvægur Hefur brunaáhættumat verið gert? Hafa eldfim efni verið fjarlægð eða þau varin með eldtefjandi efnum? Þolir undirlag og nærliggjandi byggingarefni hitann? Er loftræsting fullnægjandi, sérstaklega í lokuðum rýmum? Er slökkvibúnaður á svæðinu? Eru persónuhlífar notaðar? Er einungis viðurkenndur og vel viðhaldinn búnaður notaður? Hafa starfsmenn fengið viðeigandi þjálfun? Er brunavakt til staðar meðan vinna stendur yfir og í að minnsta kosti 60 mínútur eftir að henni lýkur? Slökkvibúnaður og kunnátta í notkun Réttur og yfirfarinn slökkvibúnaður þarf ávallt að vera til staðar og aðgengilegur. Starfsmenn þurfa að kunna á búnaðinn og geta brugðist hratt við ef kviknar í. Til að það sé hægt verður búnaðurinn að vera nálægt en t.d. ekki niðri í bíl eins og of oft er raunin. Handslökkvitæki (duft- eða froðutæki) og fleiri en eitt. Brunaslöngur eða vatnsaðgangur ef mögulegt er. Eldvarnateppi til að kæfa minni elda. Gæsla eftir að vinnu lýkur Ein mikilvægasta öryggisreglan, en jafnframt sú sem er oftast vanmetin, er eftirlit eftir að heitri vinnu lýkur. Eldur getur kviknað löngu eftir að vinnu er hætt vegna glóðar eða hita í efnum. Þetta á ekki eingöngu við um lagningu þakdúks þar sem eldur er notaður og getur farið í einangrun undir þaki, heldur einnig þar sem neistar við skurð geta farið í eldfim efni, myndað þar glóð og valdið eldi einhverju síðar. Hafa þarf vakt á svæðinu í að minnsta kosti 60 mínútur eftir að vinnu lýkur. Skoða sérstaklega falin svæði, svo sem undir þaki, í einangrun eða sprungum. Fylgjast með hvort reykur eða hitamyndun komi fram. Nota hitamyndavélar þar sem við á til að greina falinn hita. Alvarlegir atburðir vegna heitrar vinnu Mörg alvarleg bruna- og eignatjón hafa orðið vegna heitrar vinnu, bæði hérlendis og erlendis. Tjón sem hafa valdið mannskaða og tjón sem nema milljónum eða jafnvel milljörðum króna. Eldur kviknar við þakviðgerð þar sem var verið að bræða dúk með gasbrennara. Bruni í iðnaðarhúsnæði eftir logsuðu þar sem neistaflug náði í einangrun. Eldur kviknar í byggingu nokkru eftir að vinnu er lokið vegna ófullnægjandi eftirlits. Sprenging í lokuðu rými vegna neistaflugs. Niðurstaða Heit vinna er nauðsynleg í mörgum verkefnum en krefst mikillar ábyrgðar. Með réttum undirbúningi, þekkingu, fullnægjandi slökkvibúnaði og vönduðu eftirliti á meðan og eftir að vinnu lýkur má draga verulega úr hættu á eldsvoða. Lærdómur af fyrri tjónum sýnir að smávægileg vanræksla getur haft gríðarlegar afleiðingar. Öryggi þarf og á alltaf að vera í forgangi. Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS og skrifar fyrir hönd Eldvarnabandalagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Slökkvilið Tryggingar Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar