Þórir: Við lærðum bara af fyrsta leiknum Árni Jóhannsson skrifar 6. apríl 2026 22:37 KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson. Vísir / Diego Þórir Guðmundur Þorbjarnarson leiddi sína menn í að jafna metin gegn Stjörnunni í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í kvöld. KR vann 91-82 og Þórir skoraði 22 stig og gaf 13 stoðsendingar. „
Bara frábær leikur. Mikið fram og til baka“, sagði Þórir þegar hann hitti blaðamann eftir leik. „Mér fannst við gera vel í fyrri hálfleik og náðum að byrja seinni hálfleikinn vel en svo komust þeir á sprett. Sem betur fer fór þetta ekki eins og í fyrsta leiknum og við náðum að halda okkur rólegum og klára þennan leik.“ Þar vísaði Þórir til þess að Stjarnan vann þriðja leikhlutann í fyrsta leiknum 24-9. Þórir var spurður að því hvað hafi orðið til þess að KR hafi náð að halda ró sinni í þetta sinn. „Við lærðum bara af fyrsta leiknum. Svo bara stuðningurinn í stúkunni var geggjaður og við nærumst virkilega vel á því. Svo bara hörkuleikur í lokin og sem betur fer náðum við að klára þetta.“ Það er greinilega mikill þorsti í úrslitakeppnina í Vesturbæ Reykjavíkur því stemmningin í húsinu var frábær en það eru fjögur ár síðan KR var á þessu stigi síðast. „Maður er búinn að bíða eftir þessari tilfinningu í langan tíma og ljósin fóru af í byrjun leiks og maður gat ekki beðið eftir að byrja leikinn. Virkilega ánægður með að jafna metin en nú þurfum við að ná okkur niður og undirbúa okkur fyrir leik þrjú.“ Þórir var að lokum spurður að því hvort KR væru komnir með lykilinn að Stjörnunni. „Nei, þetta eru tvö hörkulið og þessi sería fer bara eins og hún fer en ég held að bæði lið munu gera allt sem þau geta til að koma út á toppnum.“
KR Bónus-deild karla Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira