Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2026 10:30 Það andar köldu á milli Gians van Veen og Lukes Littler. getty/Peter Byrne Pílukastaranum Gian van Veen segist vera alveg sama hvað heimsmeistaranum Luke Littler finnst um sig. Þeim lenti saman á keppniskvöldi í úrvalsdeildinni í pílukasti í fyrradag.
Van Veen og Littler mættust í átta manna úrslitum á keppniskvöldinu í Manchester á fimmtudaginn. Eftir að Van Veen mistókst að tryggja sér sigurinn í oddalegg fagnaði Littler fyrir framan áhorfendur í salnum. Littler mistókst sömuleiðis að klára leikinn í næstu heimsókn sinni og þóttist svo grenja í bendingu til áhorfenda. Van Veen lét látbragð Littlers ekki á sig fá, hitti í tvöfaldan sex og tryggði sér sigurinn. Van Veen og Littler tókust svo stuttlega í hendur að leik loknum. Í kjölfarið gagnrýndi Van Veen framkomu Littlers og sagði hann hafa sýnt sér dónaskap. „Hann klikkaði og svo kláraði ég og hann er líklega brjálaður. Þetta er pílukast og þetta er mitt sjónarhorn. Hans sjónarhorn er líklega öðruvísi, en svona er þetta,“ sagði Van Veen. Littler svaraði ummælum Van Veen með hlæjandi brosköllum í sögu á Instagram og birti einnig mynd sem sýndi PDC-titlana sem hann hefur unnið á síðustu tveimur árum. Van Veen brást við útspili Littlers í samtali við Viaplay. „Við höfum ekki talað saman. Ég sá viðbrögð hans á samfélagsmiðlum. Honum fannst þetta fyndið. Ég býst ekki við að við verðum vinsamlegum nótum á næstunni,“ sagði Van Veen. „Ég er hérna fyrir sjálfan mig. Hann er stórkostlegur pílukastari, efstur á heimslistanum og það sem hann gerir fyrir íþróttina er frábært en mér er nokk sama hvað honum finnst um mig.“ Littler og Van Veen mættust í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í upphafi ársins. Þar hafði Littler betur, 7-1, og vann heimsmeistaratitilinn annað árið í röð. Gerwyn Price hrósaði sigri í Manchester á fimmtudaginn, á níunda keppniskvöldi úrvalsdeildarinnar í pílukasti. Næsta keppni fer fram í Brighton á fimmtudaginn kemur. Littler er efstur í úrvalsdeildinni með 21 stig en Van Veen er í 5. sæti með tólf stig.
Pílukast Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sjá meira