Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Jakob Bjarnar skrifar 1. apríl 2026 13:34 Spítalinn tók að gefa starfsfólki páskegg vegna afar sérstakra aðstæðna sem mynduðust í Covid. Áður gaf spítalinn ekki egg. Að hann sé nú hættur því, vegna niðurskurðarkröfu, hefur vakið upp gremju víða. vísir/einar/vilhelm Samkvæmt eftirgrennslan Vísis var byrjað að gefa starfsfólki Landspítalans páskaegg í Covid sem var fyrir um sex árum. Hér er því varla hægt að tala um hefð en ákvörðun stjórnenda að hætta með páskaeggjagjafir lagðist hins vegar afar þungt í margan starfsmanninn.
Þetta sýnir svo ekki verður um villst að því sem eitt sinn hefur verið komið á verður ekki svo glatt aflagt. Fjölmargir innan spítalans firrtust þó við þegar tíðindi af þessu bárust. Meðal þeirra var Ragnar Freyr Ingvarsson, sem bæði starfar sem sjálfstætt starfandi læknir og inni á Landspítalanum, furðaði sig á forgangsröðuninni en niðurskurðarkrafa var ástæða þess að spítalinn vildi hætta að gefa páskaegg. Fréttaflutningur af þessu leiddi svo til þess að Góa og Omnom stukku til og gáfu samtals rúmlega sjö þúsund egg til spítalans. Hann sat því eftir sem áður uppi með þann höfuðverk að dreifa eggjunum en það er hægara sagt en gert. Eftir því sem Vísir kemst næst hefur þó gengið vel að koma eggjunum út þó að yfirstjórnin í Skaftahlíðinni hafi að þessu sinni sagt pass. En samkvæmt fyrstu upplýsingum voru eggin sex þúsund ætluð sjö þúsund starfsmönnum. Það hefur svo verið leiðrétt. Viðbrögð við fréttum Vísis af stóra páskaeggjamálinu, en sá fréttaflutningur teygði sig víða, varð til þess að fjölmargar ábendingar og fyrirspurnir bárust fréttastofu. Ein þeirra er frá Guðjóni Sigurðssyni sem er formaður MND á Íslandi. Hann segir fréttina hljóma eins og starfsmenn LSH hafi fengið páskaegg frá örófi alda en það kemur honum spánskt fyrir sjónir. Guðjón Sigurðsson, formaður MND-samtakanna á Íslandi furðar sig á upphlaupinu sem hefur orðið vegna þess að Landspítalinn vill hætta að gefa starfsfólki páskaegg.vísir/valgarður „Við hjá MND á Íslandi höfum í mörg ár gefið starfsfólki taugalækningadeildar og MND-teymisins páskaegg, vegna þess að starfsmenn hafa ekki fengið þau frá LSH. Sama gildir með jólagjafir sem við höfum fært „okkar“ fólki. Litlar gjafir en meira svona táknrænn þakklætisvottur,” segir Guðjón og hann spyr: Hvenær byrjaði LSH að gefa starfsmönnum páskaegg og hvenær var þetta svo skorið af? Guðjóni þykir þetta kúnstugt en svarið er sem sagt að það að spítalinn hóf fyrst að gefa starfsfólki páskaegg í Covid.
Landspítalinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Páskar Rekstur hins opinbera Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira