Engin egg í Skaftahlíðina Jakob Bjarnar skrifar 31. mars 2026 16:46 Helga Vilhjálmssyni og hans fólki hjá Góu er þakkað sérstaklega í pósti til allra starfsmanna Landspítalans. Ragnar Freyr læknir viðraði óánægju sína með að starfsfólk fengi ekki páskaegg í ár og Helgi brást skjótt við. vísir „Við sendum Helga Vilhjálmssyni og hans góða starfsfólki bestu kveðjur og þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf.“ Svo segir í pósti til allra starfsmanna Landspítalans sem Vísir hefur undir höndum.
Kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið – það er meira en að segja það að dreifa eggjum til starfsfólks Landspítalans með svo skömmum fyrirvara. Rausnarleg páskaeggjagjöf til starfsfólks Landspítalans frá Góu og Omnom er nú komin til Landspítalafólks en Helga Vilhjálmssyni rann blóðið til skyldunnar eftir að Vísir greindi frá óánægjuröddum, meðal annars frá Ragnari Frey Ingvarssyni lækni. Eggin komu til dreifingar þar seinnipartinn í gær. Þeir sem önnuðust dreifinguna stóðu í þeirri meiningu að eggin sem frá Góu kæmu væru sex þúsund meðan það eru hins vegar sjö þúsund manns sem gegna sex þúsund stöðugildum hjá spítalanum. Fréttastofu hefur hins vegar borist ábending um að það sé ekki á rökum reist; að páskaeggin frá Góu séu 7,140. Þetta verður því ekki vandamál. Engin egg í Skaftahlíðina Hins vegar fórnaði starfsfólk spítalans það sem sem starfar í Skaftahlíðinni, en þar er öll yfirstjórn spítalans, hugbúnaðarsvið, launadeild, mannauðsdeild, fjármálasvið og svo framvegis, sér og fær engin egg. Þar starfa fjögur hundruð manns. „Í ljósi þess að gjöfin er fyrst og fremst hugsuð til framlínustarfsfólks hefur verið ákveðið að starfsfólk í Skaftahlíð sleppi páskaeggjum að þessu sinni,“ segir í bréfinu til starfsfólks. Þau sem eru á vakt yfir páskana fá Omnom-páskaegg. Fimm þúsund egg koma frá Góu og þúsund frá Omnom. Er starfsfólk vinsamlegast beðið, vegna þess að eggin eru færri en starfsfólkið, vinsamlegast beðið um að taka ekki með sér nema eitt egg á mann, svo sem flestir geti notið. Hausverkur að dreifa eggjum með svo skömmum fyrirvara Eins og fram hefur komið var tekin sú ákvörðun, vegna niðurskurðarkröfu, að gefa starfsfólki ekki páskaegg þetta árið. Gjöfin góða frá Góu og Omnom er vissulega vel þegin en hún er ekki laus við vandamál, því gríðarlega flókið mál er að dreifa eggjum til alls starfsfólks en vaktatöflur og starfshlutfall eru með ýmsu móti. Því var tekin ákvörðun um að dreifa eggjunum í mötuneytum á eftirfarandi stöðum: Páskaegg verða í mötuneytum á eftirfarandi stöðum: Hringbraut Fossvogur Líknardeild Landakot Kleppur Tunguháls Uppfært 17:00 Fréttastofu hefur borist ábending um að páskaeggin sem frá Góu koma eru 7.140. Þar af eru þúsund Omnom-egg.
Páskar Rekstur hins opinbera Landspítalinn Sælgæti Tengdar fréttir „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, eyddi alls 697.133 í páskaegg og umbúðir til handa ráðherrum og starfsfólki ráðuneytisins. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins furðar sig á kostnaðinum og telur þetta birtingarmynd raunveruleikarofs þegar kemur að opinberum útgjöldum. 31. mars 2026 12:15 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira
„Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, eyddi alls 697.133 í páskaegg og umbúðir til handa ráðherrum og starfsfólki ráðuneytisins. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins furðar sig á kostnaðinum og telur þetta birtingarmynd raunveruleikarofs þegar kemur að opinberum útgjöldum. 31. mars 2026 12:15