Óskað eftir aðhaldi á frasahlið ríkisstjórnarinnar Gísli Stefánsson skrifar 31. mars 2026 11:32 Nú þegar fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er kominn fram er ljóst að ekki er sparað til þegar kemur að tungutaki. Orð , orðasambönd og setningar eins og tekjubreytingar, skattaumbætur, styrking og aðlögun tekjustofna, aukin framlög til sameiginlegra verkefna, aðhald á tekjuhlið og fleira fær að fljúga og merkir í raun fyrst og fremst skatta- og gjaldahækkanir á almenning, fólk og fyrirtæki. Skattar sjást best í raunhagkerfinu Þegar skattar hækka er það ekki bara lína í fjárlögum. Það verður minna eftir í vösum fólks. Á þeim stöðum þar sem heimilin eru tengd raunhagkerfinu í gegnum störf í sjávarútvegi, ferðaþjónustu, ýmiskonar iðnaði og landbúnaði skiptir hver hækkun máli. Þegar auðlindagjöld hækka hefur það áhrif á byggðir sem standa á fáum eða jafnvel bara einni atvinnugrein. Það þýður minni fjárfesting í skipum, minni umsvif í höfnum og færri störf.Þegar erfðafjárskattur er hækkaður snýst það ekki um hið illa auðvald. Það snýst um fjölskyldubú, verkstæði og smærri fyrirtæki sem eiga að flytjast milli kynslóða. Í litlum samfélögum getur slíkur skattur þýtt að eignir þurfi að selja til að standa undir skattinum. Ef það er jöfnuður er það jöfnuður þar sem allir hafa það jafn slæmt. Landbúnaður og orka þola ekki endalausar álögur Búskapur byggir á ástríðu, milli vinnu, miklum fjárfestingu og oft lítilli framlegð. Þegar gjöld hækka er ekki svo einfalt að velta því út í verðið. Sama gildir um orkuna. Þegar orkuverð hækkar vegna gjalda, kvaða eða opinberra ákvarðana er það í reynd ekkert annað en óbeinn skattur. Hærra orkuverð leggst á heimilin og á fyrirtækin og þá sérstaklega á þann hluta atvinnulífsins sem þarf mikla orku. Við getum ekki talað um samkeppnishæft atvinnulíf á sama tíma og við hækkum stöðugt kostnaðinn við það sem það byggir á. Ríkið á að vera fyrir fólkið Ríkið á að axla ábyrgð þar sem hún skiptir máli, í heilbrigðisþjónustu, samgöngum og orkuöryggi, sérstaklega þar sem vegalengdir eru langar og þjónustan veik. En það að ríkið beri ábyrgð réttlætir ekki sjálfkrafa hærri skatta. Ef allar lausnir hjá ríkinu kalla eftir nýjum skatti, þá er vandinn ekki tekjuskortur heldur skortur á aðhaldi. Ekki aðeins á útgjaldahlið heldur einnig á þeirri hlið sem einkennir þá forræðishyggju sem nú ræður ríkjum á Alþingi. Ég óska því eftir að ef ríkisstjórnin ætlar að hækka skatta að hún segi það berum orðum. Ég kalla því eftir aðhaldi á frasahlið ríkisstjórnarinnar. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gísli Stefánsson Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar