Þeir fiska sem róa Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 30. mars 2026 13:32 Við erum stórþjóð þegar kemur að fiskveiðum. Íslenskur sjávarútvegur er öðrum þjóðum fyrirmynd, ekki síst vegna þeirra kerfisbreytinga sem ráðist var í á síðustu öld. Fyrir innleiðingu kvótakerfisins einkenndist greinin af ofveiði, óstöðugleika og takmarkaðri nýtingu. Með kvótasetningunni árið 1984, sem byggði á vísindalegri ráðgjöf, varð til grundvöllur fyrir sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar. Sú breyting skapaði hvata til fjárfestinga, nýsköpunar og aukinna gæða. Hún skilaði sér í verðmætari afurðum, öflugri fyrirtækjum og bættum starfsaðstæðum bæði á sjó og í landi. Þetta er kjarninn í því sem við köllum sjálfbærni. Að nýta auðlind án þess að ganga á hana og skapa verðmæti sem skila sér aftur til samfélagsins. Aðrar hliðar kerfisins hafa verið umdeildar. Spurningar um framsal kvóta, samþjöppun og hlutdeild þjóðarinnar eru mikilvægar og réttmætar. En það breytir ekki þeirri staðreynd að íslenskur sjávarútvegur er sterkur og að styrkur hans byggir á getu til að takast á við breytingar. Hugarfar sem skapar tækifæri Sjávarútvegurinn hefur sýnt að hann getur brugðist við stórum kerfisbreytingum og umbreytt þeim í tækifæri. Við höfum byggt upp fyrirtæki sem eru leiðandi á alþjóðlegum mörkuðum. Við búum yfir þekkingu, reynslu og seiglu sem fáar þjóðir geta jafnað. Þessi árangur byggir á ákveðnu hugarfari. Að horfast í augu við staðreyndir, aðlaga sig nýjum veruleika og nýta hann til að skapa verðmæti. Þetta sama hugarfar þarf að vera leiðarljós í umræðunni um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Tækifærið í viðræðum Á ársfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi kom fram að samtökin settu sig ekki upp á móti þjóðaratkvæðagreiðslu, en kölluðu eftir skýrari samningsafstöðu og víðtæku samráði. Það er skynsamleg afstaða. Markmiðin sem sett voru fram í síðustu aðildarviðræðum voru skýr: að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er. Þessi markmið standa enn. Hvað lögsöguna varðar þá hafa reglur sambandsins (um hlutfallslegan stöðugleika) ekki breyst - öðrum þjóðum yrði ekki heimilt að veiða í íslenskri lögsögu. Ef þjóðin segir já hefst vinna við að uppfæra samningsmarkmið og skilgreina hagsmuni Íslands, með þátttöku sérfræðinga og atvinnulífsins, líkt og gert var fyrir síðustu aðildarviðræður þar sem meira en 200 manns tóku þátt í samráðinu. Þar verða hagsmunasamtök eins og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi lykilþátttakendur eins og síðast. Ég hef lagt á það þunga áherslu að þessi kafli og kaflinn um landbúnað verði opnaðir sem fyrst, komi til viðræðna, og ég hygg að þessir kaflar muni koma til með að lokast síðast. Því um þá hverfast ríkustu hagsmunir okkar og mælikvarðinn á þann árangur sem við getum náð fyrir Ísland. Þegar kemur að sjávarútvegskaflanum höfum við margt að sækja og við eigum að hafa metnað fyrir því að kanna hvaða tækifæri gætu legið til grundvallar fullri aðild að Evrópusambandinu. Hvað er undir Sjávarútvegur er fjármagnsfrek grein. Lægri vextir myndu skipta sköpum, sérstaklega fyrir minni fyrirtæki og nýsköpun sem ekki hafa sömu möguleika og stærri fyrirtæki sem gera upp í evrum nú þegar til að verjast gengissveiflum. Aðild að tollabandalagi þar sem stærstur hluti útflutnings okkar endar myndi einnig breyta stöðu greinarinnar. Formaðurinn nefndi sérstaklega í ræðu sinni að við þyrftum að styrkja stöðu okkur gagnvart Norðmönnum og Færeyingum með fjárfestingu í markaðssetningu. Markaðssetning er ekki tímabundið verkefni. Hún er varanleg fjárfesting sem lýkur aldrei. Væri ekki til mikils að vinna fyrir greinina að eiga kost á því að vera innan tollabandalagsins og hafa möguleika á því að fjármagna sig á eðlilegum vaxtakjörum og hafa aðgang að öflugu styrkjaumhverfi ESB? Áhrif eða aðlögun Íslenskur sjávarútvegur þekkir vel hvað það þýðir að starfa í alþjóðlegu umhverfi. Að búa við gengisáhættu, sveiflur og ákvarðanir sem teknar eru annars staðar. Aðrar fiskveiðiþjóðir innan Evrópusambandsins hafa áhuga á þátttöku Íslands, ekki vegna aðgangs að íslenskum miðum heldur vegna þeirrar þekkingar sem við búum yfir. Með aðild Íslands yrði uppfærsla á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins, en ekki niðurfærsla á íslenskum sjávarútvegi. Líkt og einn Þjóðverji í sjávarútvegi sagði við mig í Hamborg á dögunum - við þurfum ykkar reynslu og þekkingu til að gera betur heima fyrir. Þið eruð fyrirmyndin. Það er raunhæf sýn að Ísland geti haft leiðandi áhrif á þróun sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu, frekar en að vera einungis viðtakandi regluverks. Niðurstaða Hagsmunir sjávarútvegsins og samfélagsins verða ævinlega samofnir. Að kanna hvað felst í mögulegum samningi er ekki áhætta. Það er forsenda upplýstrar ákvörðunar. Að hafna því að kanna tækifæri, með alla þá þekkingu og reynslu sem við búum yfir, er ekki það hugarfar sem byggði upp íslenskan sjávarútveg og kom honum í fremstu röð á heimsvísu. Þeir fiska sem róa. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Evrópusambandið Sjávarútvegur Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar