De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2026 10:30 Roberto De Zerbi gæti snúið aftur í enska boltann. getty/Xavier Laine Ekki er loku fyrir það skotið að Roberto De Zerbi taki strax við Tottenham og freisti þess að bjarga liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni.
De Zerbi þykir einna líklegastur til að taka við Spurs sem er stjóralaust eftir að Igor Tudor hætti í gær eftir aðeins 44 daga í starfi. Hann stýrði liðinu í sjö leikjum en fimm þeirra töpuðust. Fyrstu fréttir hermdu að De Zerbi vildi ekki taka strax við Tottenham heldur bíða þar til í sumar. Sky á Ítalíu greinir hins vegar frá því að De Zerbi sé ekki mótfallinn því að taka strax við Tottenham. Félagið vill gera fimm ára samning við hann. De Zerbi hætti sem stjóri Marseille í febrúar og talið var að hann vildi bíða þar til eftir tímabilið til að taka við nýju starfi. En það gæti breyst og Ítalinn ku vera tilbúinn að hefjast handa hjá Spurs undir eins enda verk að vinna á þeim bænum. Tottenham er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með þrjátíu stig, einu stigi frá fallsæti þegar liðið á sjö leiki eftir. Næsti leikur Spurs er gegn Sunderland á Ljósvangi sunnudaginn 12. apríl. Tottenham er eina liðið í ensku úrvalsdeildinni sem hefur ekki unnið leik á árinu 2026. Hinn 46 ára De Zerbi þekkir enska boltann vel en hann stýrði Brighton á árunum 2022-24. Undir hans stjórn endaði liðið í 6. sæti tímabilið 2022-23 og vann sér þátttökurétt í Evrópukeppni í fyrsta sinn.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Sjá meira