„Þetta er leikur um bikar og við stefnum á þá alla“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 29. mars 2026 16:48 Sölvi Geir Ottesen var ánægður með sína menn í dag og segir alvöruna vera að hefjast. vísir / anton brink „Ég var mjög sáttur með frammistöðuna. Klárlega sterkari aðilinn í leiknum og höfðum virkilega góða stjórn á leiknum,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sem unnu í dag Meistarakeppni KSÍ, eða meistara meistaranna. Lokatölur 4-0 gegn bikarmeisturum Vestra. „
Mér fannst bara menn klárir í þetta verkefni í opnunarleik á nýju tímabili. Menn lögðu mikla vinnu í þetta og virtu andstæðinginn, þó að Vestri sé í næst efstu deild þá er þetta bara leikur um bikar og við stefnum á þá alla. Fyrsti er því kominn.“ Áhugavert er að þessi opnunarleikur knattspyrnu tímabilsins á Íslandi fari fram í miðju landsleikjahléi, sem er iðulega ekki raunin þegar um keppnisleik er að ræða. Víkingur var til að mynda án Gylfa Þórs og Gunnars Vatnhamars vegna þess að þeir eru í landsliðsverkefnum. Sölvi Geir segist ekki kippa sér upp við það og sé þetta í raun liður í því að koma Íslandsmótinu fyrr af stað. „Það er eins og það er. Svo sem skemmtilegt að við séum með leikmenn í landsliðinu, sýnir bara hvað hópurinn okkar er sterkur. Við erum að reyna að koma mótinu fyrr af stað og þetta er bara partur af því.“ Víkingar mæta Fram í Mjólkurbikarnum eftir viku. Sölvi Geir segir leik dagsins hafa verið mikilvægt próf fyrir þann stóra leik, strax í 32-liða úrslitum. „Já, klárlega. Það er það sem við töluðum um fyrir leikinn að ákefðin og gæðin í leiknum myndu aðeins smita út frá sér. Við þurfum dálítið að eiga góða frammistöðu í kvöld til þess að byggja ofan á mómentumið hjá okkur. Við viljum koma vel stemmdir inn í það einvígi á móti Fram. Það skiptir máli að eiga góða frammistöðu í dag.“ Athygli vakti að Sveinn Margeir Hauksson var í leikmannahóp Víkings í dag, þar sem búið var að opinbera að hann væri á leið til KA að láni út tímabilið. Kom Sveinn Margeir meira að segja inn á undir lok leiksins. Sölvi Geir segir það hafa verið mikilvægt fyrir Svein Margeir að spila í dag, en hann er að koma til baka eftir löng meiðsli. „Sveinn Margeir er búinn að vera í erfiðum meiðslum, virkilega erfiðum, sem eru búin að reyna rosalega mikið á og hann er bara alltaf að komast í betra stand. Vissulega er hann að fara á lán til KA, en hann fær núna nokkrar mínútur sem gerir hann enn þá klárari fyrir mótið. Þannig að þetta er bara fyrir hann að koma sér í stand. Þó að við séum að lána hann þá er hann samt okkar leikmaður og við hugsum bara um hann,“ sagði Sölvi Geir að lokum.
Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík KSÍ Vestri Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira