Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. mars 2026 11:11 Finnur Ólafsson er oddviti Kaldrananeshrepps. Hann er Vestfirðingur að hálfu og Austfirðingur að hálfu en Strandamaður í húð og hár. Alinn upp í Bjarnarfirði, síðar á Hólmavík en flutti svo á Drangsnes. Vestfjarðarstofa Árneshreppur og Kaldrananeshreppur á Vestfjörðum munu sameinast eftir að meirihluti íbúa í báðum sveitarfélögum samþykktu tillöguna í íbúakosningu sem lauk í gær. Oddviti Kaldrananeshrepps trúir að sameinað sveitarfélag fái kröftuga innspýtingu frá ríkinu enda sé mikill áhugi á svæðinu og skortur á íbúðarhúsnæði eftir því.
Kjörsókn í Árneshreppi var rúmlega 80 prósent og sögðu 57 prósent já við sameiningu. Kjörsókn var minni í Kaldrananeshreppi, eða 57 prósent, en þar voru 73 prósent fylgjandi. Mættu óskum íbúa Finnur Ólafsson oddviti Kaldrananeshrepps segir að í báðum hreppum hafi kalli íbúa um sameiningu verið svarað. „Þetta er það sem var búið að skynja og maður skynjaði þetta líka frá Árneshreppi þannig að áhuginn var til staðar og við vorum náttúrulega bara að mæta þeim óskum þegar við fórum í þessa vinnu.“ Hann er bjartsýnn á framhaldið. „Ég trúi því að núna leysist úr læðingi smá framlag frá ríkinu sem getur nýst til þess að reyna að vera með einhverja kröftuga innspýtingu á okkar svæði. Það er alveg ljóst að það er mikill áhugi á öllu þessu svæði. Við finnum gríðarlega mikið fyrir íbúðarhúsnæðisskorti núna, bæði hvort sem það er í Kaldrananeshreppi eða Árneshreppi. Við sem sveitarfélag viljum náttúrulega bara tryggja að innviðirnir séu til staðar þannig að svæðið okkar allt saman geti vaxið og dafnað.“ Engar áhyggjur af óánægjuröddum Fjörutíu prósent íbúa í Árneshreppi voru á móti sameiningu og í hreppnum var stofnað til framboðsins Framtíð Árneshrepps sem valkosts fyrir þá sem ekki teldu tímabært að ganga til sameiningar. Finnur hefur engar áhyggjur af því að slíkt framboð spilli fyrir sameiningarferlinu. „Nei, alls ekki. Ég fagna öllum áhuga á að taka þátt í sveitarstjórnarmálum og þetta sýnir einmitt hvað það er mikil gróska til staðar þegar fólk er tilbúið að berjast fyrir sínu nærumhverfi. Og ég fagna því að að það sé komin þessi staða og að það sé bara hægt að virkja fólk með til þess að vinna að góðum málum fyrir sín svæði.“ Nafnið í höndum íbúanna Finnur segist munu taka sunnudaginn rólega. „Og síðan förum við bara aftur að ræða málin eftir helgi. Síðan eru náttúrulega bara kosningar í maí og það verður svona bara að sjá, sjá hvernig þetta þróast fram að því.“ Stóra málið í svona sameiningum, hvort sem er sveitarfélaga eða íþróttafélaga, er yfirleitt að finna nafn á nýtt sveitarfélag. Hvernig leggst það í þig? „Heyrðu, þetta er náttúrulega bara eitt af þessum krefjandi verkefnum sem eru fram undan, að finna nýtt nafn, eða ekki. Það er bara hægt að halda Árneshreppi, Kaldrananeshreppi. nöfnunum, en þetta er náttúrulega alltaf bara í höndum íbúanna að þeir velji sér sína útkomu.“
Kaldrananeshreppur Árneshreppur Sveitarstjórnarmál Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira