Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. mars 2026 23:17 Skólastjóri Laugarnesskóla bendir á að ekki er sama Jón kennari og Jón ráðuneytisstarfsmaður, hvað þá Jón ráðherra. Vísir/Samsett Stóra páskaeggjahallærið virðist há fleirum en starfsmönnum Landspítalans. Skólastjóri Laugarnesskóla furðar sig á því að menntamálaráðuneytið hafi varið tæplega sjö hundruð þúsund krónum í páskaegg frá Nóa Siríus af stærðinni sjö í sérútbúnum, litprentuðum umbúðum á meðan starfsmenn Laugarnesskóla urðu að láta sér duga páskaegg númer eitt sem foreldrar í hverfinu gáfu þeim.
Í færslu sem Björn Gunnlaugsson skólastjóri Laugarnesskóla birti á samfélagsmiðlum vísar hann til nýlegra yfirlýsinga menntamálaráðherra og sendi henni væna pillu í leiðinni. „Það verður auðvitað til heilmikið handbært fé í málaflokknum þegar við erum með svona voðalega stutt skólaár,“ sagði hann. Molunum misskipt Mikið hefur verið rætt og ritað um páskaeggjahallærið svokallaða á vinnustöðum hins opinbera, sér í lagi um það misræmi sem virðist gæta vinnustaða á milli. Ragnar Freyr Ingvarsson læknir vakti athygli á því fyrr í vikunni að starfsmenn Landspítalans fengju ekki páskaegg frá ráðuneytinu þetta árið vegna niðurskurðarkröfu, á sama tíma fær starfsfólk heilbrigðisráðuneytisins páskaegg. Ekki nóg með það heldur sást til ráðherra taka heim vegleg páskaegg í sérumbúðum, svokölluð fjöregg, af fundi ríkisstjórnarinnar þriðjudaginn síðasta. Um var að ræða gjöf frá Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra en þau bera þessa nafngift vegna þess að: „menntamál eru fjöregg þjóðarinnar og það skiptir öllu máli að ríkisstjórnin sinni þeim vel.“ Alls 85 „fjöregg“ útbúin Fréttastofa bar rausnarlega páskaeggjagjöf Ingu undir ráðuneytið en þá kom í ljós að það voru ekki bara samráðherrar hennar sem fengu sérumbúið páskaegg heldur allir starfsmenn menntamálaráðuneytisins. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra glaður með fjöregg í fanginu.Vísir/Sigurjón Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir að Inga Sæland hafi boðað á fundi ríkisstjórnar öfluga menntasókn. „Í ljósi þessa og að málefni varðandi lestrarkennslu eru eitt af forgangsmálum mennta- og barnamálaráðuneytis hafði verið tekin sú ákvörðun fyrir tveimur vikum, að þessa páskana skyldi páskaegg til starfsmanna mennta- og barnamálaráðherra vera í pappaöskju sem byggði á lestarkennslubókinni “Gagn og gaman”. Fyrstu sprettlotu ráðuneytisins undir nýrri yfirstjórn var einnig nýlokið með góðum árangri og var gefið stærra páskaegg en áður af því tilefni.“ „Ég er Inga Sæland á Sælandi“ Téður texti prýddi eina hlið askjanna undir yfirskriftinni „Sumar á Sælandi“. Sumar á Sælandi mun hafa verið samið af starfsmanni menntamálaráðuneytisins.Aðsend Í svari ráðuneytisins kemur fram að starfsmaður þess hafi samið textann. Einnig er tekið fram að útgefandi Gagns og gamans, Sæmundur, hafi góðfúslega samþykkt notkun myndanna. Alls voru framleiddar 85 öskjur af þessu tagi þar sem daginn fyrir ríkisstjórnarfund var ákveðið að ráðherra gæfi samráðherrum sínum líka páskaegg. Alls kostuðu eggin 457.933 krónur og umbúðirnar kostuðu 239.200 krónur auk virðisaukaskatts. Ráðuneytið bar kostnaðinn.
Páskar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grunnskólar Skóla- og menntamál Sælgæti Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira