Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. mars 2026 21:21 Búast má við töfum á þjónustu á flugvöllunum á Tenerife yfir páskana. EPA Yfir 1.500 flugvallarstarfsmenn víða á Kanaríeyjum boða verkföll í kringum páskana eftir að kjaraviðræður vinnuveitenda og stéttarfélaga sigldu í strand. Verkföll á Tenerife Sur-flugvelli, sem flogið er til frá Íslandi, eru fyrirhuguð 28. og 29. mars og 2.-6. apríl.
Samkvæmt umfjöllun Canarian Weekly eru ferðamenn varaðir við mögulegum töfum vegna verkfallanna. Starfsmenn í innritun, farangursumsjón, farþegaþjónustu og flugafgreiðslu eru meðal þeirra sem leggja niður störf umrædda daga. Verkföllin ná til beggja flugvallanna á Tenerife og flugvallanna á Gran Canaria og Lanzarote. Miðillinn hefur eftir stéttarfélaginu Unión General de Trabajadores að um tvö samhliða verkföll sé að ræða, starfsmanna flugþjónustufyrirtækisins Groundforce annars vegar og Menzies hins vegar. Stéttarfélagið kvartar meðal annars undan vangreiddum launum, ólaunaðri yfirvinnu og illa skipulögðum vaktaplönum. Margt er enn óljóst í tengslum við hin boðuðu verkföll og ekki liggur fyrir hve mikil áhrif verkföllin muni hafa á umferð um flugvellina. Í frétt Canarias7 segir að þó að óstaðfest sé að lágmarksþjónusta verði tryggð meðan á verkföllunum stendur bendi allt til þess að svo verði, líkt og í fyrri verkföllum. Þó séu nær allar líkur á að þau muni valda töfum á starfsemi vallarins.
Kanaríeyjar Kjaramál Spánn Páskar Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira