Hádegisblundur og pásur – Með viti fremur en striti Benedikt Jóhannsson skrifar 26. mars 2026 11:00 Blundur Í einni af mínum fyrstu minningum fékk ég að fara með til að færa fólki, sem var við slátt út á engjum, mat í hádeginu. Þetta var gert til að spara fólkinu tíma frá því að koma sjálft heim á bæ til að borða, svo að það gæti fremur notað tímann í mikilvægan heyskap. Þegar fólkið hafði matast lagðist það engu að síður á bakið í flekkinn og fékk sér smá blund. Karlarnir drógu húfurnar fyrir andlitið, en konurnar slæðurnar. Mér hefur oft verið hugsað til þessarar stundar og að fólkið skyldi leggja sig svona í slægjuna um hábjartan dag á annatíma. Auðvitað var það gert til að safna kröftum fyrir erfiða vinnu. Það er gamall sveita siður að leggjast skamma stund á meltuna eftir hádegis matinn. Kannski átti sveitafólkið fyrirmynd í atferli húsdýranna sem iðulega fengu sér blund á daginn. Hundurinn dottaði makindalega með höfuðið á framfótunum og segja mætti að mannfólkið væri verr sett en hann, ef það gæti ekki leyft sér slíkt líka. Þannig var sveitafólkið í takt við náttúruna, bæði umhverfi sitt og innra eðli. Þessi siður fylgdi sveitamönnum á mölina og meðan stutt var milli heimilis og vinnustaðar í þéttbýli tíðkaðist lengi vel að menn skryppu heim í hádegismat og fengu sér smá lúr. Á menntaskólaárunum vann ég á sumrum í símavinnuflokki á Suðurlandi og þá fékk allur flokkurinn sér blund eftir hádegismatinn. Þessi sveitasiður, að fá sér stuttan hádegisblund í kannski um það bil 15 til 20 mínútur, er nú víðast hvar aflagður í þéttbýli hér á landi. Svefn og svefnlotur Á seinni árum hefur talsvert verið fjallað um mikilvægi svefns hér á landi. Svefnfræðingar hafa komið fram með ýmis ráð til að bæta svefn og þá gjarnan varað við því að fólk leggi sig á daginn. Einkum er varað við að langir blundir síðla dags geti truflað nætursvefn. En hvað segja fræðin? Sem kunnugt er endurnærir hvíld og svefn líkamann, sem er honum lífsnauðsynlegt. Á þetta ekki síst við um heilan og taugakerfið. Svefninn skiptist í fjögur stig eftir eðli og dýpt svefnsins. Líkamleg endurnýjun og hreinsun á sér einkum stað í djúpsefni, en úrvinnsla minninga og tilfinninga er einkum talin fara fram í draumasvefni (REM-svefni). Heilinn fer sí endurtekið í gegnum svefnstigin í yfir nóttina og tekur hver svefnlota um það bil 90 mínútur, eða ríflega það. 1, 2 og 3) Vökulotur Fyrir mörgum árum sat ég fyrirlestur hjá sálfræðingnum Ernset L. Rossi, sem þá hafði nýverið skrifað bók sína, The Twenty-Minute Brake, sem kom út árið 1991. Hann byggir á rannsóknum N. Kleitman og heldur því fram að líffræðilegar lotur í takt við svefnloturnar eigi sér einnig stað í vöku. Kleitman talar um Basic Rest-Activity Cycle, BRAC. Rossi talar um ,,ultradian rhythms", sem kalla mætti vökulotur íslensku. Líkt og í svefni vara loturnar í 90 til 120 mínútur. Þær skiptast í háorkustig sem einkennist af einbeitingu, virkni, sköpun og afköstum. Síðan tekur við lágorkustig sem varir í 15 til 20 mínútur og einkennist af þreytu og þörf fyrir hvíld. Mikilvægt er að taka mark á þreytumerkjunum og taka sér hlé til hvíldar og endur næringar. Ef það er gert aukast einbeiting og afköst á næsta háorkustigi. Séu þreytumerkin hins vegar hundsuð eykur það á streitu, dregur úr einbeitingu og sköpunarkrafti. Langvarandi hundsun á þreytumerkjum líkamans getur leitt til svefntruflana og að lokum kulnunar.4 og 5) Hér er því mikið í húfi. Skipulag daglegrar virkni Ekki veit ég hvort þeir sem lögðu grunninn af stundatöflum í grunnskólum landsins þekktu þessi fræði um vökulotur, en töflurnar eru nokkuð í takt við þau. Þannig varir hver kennslustund oft í 40 mínútur og stundum eru þær hafðar samliggjandi í samtals 80 mínútur, sem þá eru gjarnan brotnar upp um miðbik tímans. Þá eru teknar frímínútur í 15 til 20 mínútur, gjarnan með samliggjandi nestistíma, en hádegishléið er lengra með meiri næringu. 6) Eins og áður kom fram er ég alinn upp í sveit og þar fékk fólk sér næringu á um það bil tveggja tíma fresti árdegis og um þriggja tíma fresti síðdegis. Sama fyrirkomulag var í símaflokki sem ég vann í á sumrin og í mötuneyti Menntaskólans að Laugarvatni. Árdegis leið sem sagt styttri tími milli þess sem fólk fékk sér næringu, en síðdegis var tíminn um það bil tvær vökulotur á milli næringarstunda. Svo virðist því sem fólk hafi hlustað nokkuð vel á þarfir líkamans fyrir hvíld og næringu og taktur athafna og endur næringar verið í góðu samræmi við hinar líkamlegu þarfir. Nefna má að á mínum bæ tók fólk sér gjarnan smá pásu á milli þess sem það nærðist, eða eftir um það bil eina vökulotu. Ég heyrði einnig af hópi Íslendinga sem fór að vinna í verksmiðju í Svíþjóð eftir eina kreppuna hér heima. Ólíkt Svíunum tóku Íslendingarnir pásur eins og þeir áttu að venjast á Íslandi. Sænskum yfirmönnum leist ekki á í fyrstu, en þegar þeir sáu afköst Íslendinganna, hættu þeir við að veita þeim tiltal. Hádegisblundurinn Eins og áður sagði tíðkaðist til sveita að leggja sig í stutta stund eftir hádegis-matinn. Svefnfræðingurinn Matthew Walker segir að það sé hluti af hinum náttúrulega sólarhrings takti að fólk syfji síðdegis og að í þjóðfélögum þar sem iðnvæðingin hefur ekki tekið yfir dagtaktinn þá sé algengt að fólk leggi sig síðdegis, einkum yfir sumarið þegar heitast er, samanber síestu í löndum Miðjarðarhafsins. Gerð var rannsókn á Grikkjum sem neyddust til að leggja af síestuna vegna kröfu vinnumarkaðarins og í ljós kom að dánartíðni meðal þeirra óx um tugi prósenta. Á grískum eyjum þar sem menn taka enn sína síestu er langlífi hins vegar mikið.2) Hér á vesturlöndum neyðumst við til að ýta síðdegis syfjunni til hliðar og keyra okkur áfram, margir með fleiri kaffibollum. En þar sem ég er nú kominn á eftirlaun get ég leyft mér að leggja mig í stutta stund eftir hádegismatinn. Ég sofna yfirleitt ekki beinlínis, en jafnan líður vel úr mér, þannig að mér hverfur hugur um stund, eins og kerlingin sagði. Síðan stend ég upp endurnærður og teygi úr mér. Rannsóknir hafa sýnt að blundur eftir hádegið skerpir á vitrænni starfsemi og bætir minni á nýjar upplýsingar.7) Ætla má að þetta skipti einkum máli fyrir vinnu sem reynir verulega á vitræna starfsemi. Ég er ekki að leggja til að tekinn verði upp hádegisblundur á nútíma vinnustöðum, en er vert að hafa í huga að fólk geti borðað í næði og jafnvel tekið því aðeins rólega fyrst eftir hádegismatinn, áður en því er ætlað að takast aftur á við krefjandi verkefni. Með viti fremur en striti Vinnuumhverfi á vesturlöndum hefur fjarlægst náttúruna og réttur starfsmanna til að taka kaffihlé jafnvel verið gefinn eftir í kjarasamningum. Um leið er hætta á að við skynjum síður náttúruna í okkur sjálfum og séum síður í takt við eigið eðli. Vökulotur þær sem hér hefur verið lýst eiga líklega best við um virkni sem reynir á heilann, eins og nám, fræðastörf og skrifstofuvinna. Við vinnu sem felur í sér mikið líkamlegt erfiði þurfa menn sjálfsagt oftar að taka hlé og hvíla sig. Ef ekki er tekið mark á kalli heila og líkama um hvíld og endur næringu og þreyta fer að safnast upp og verður langvarandi, er hætta á að heilsan fari að gefa sig og að annars heilsuhraust fólk lendi í þeirri örmögnun, sem nú er farið að kalla kulnun og virðist samkvæmt fréttum fara vaxandi á vesturlöndum. Hér er því mikið í húfi og mikilvægt fyrir bæði heilsu og frammistöðu í vinnu, að hlusta á þarfir líkamans fyrir hvíld og mæta þeim með viðeigandi hætti. Ernest Rossi setur í þessu samhengi fram slagorðið:,,Work smarter not harder", 5) sem þýða mætti á íslensku sem: Vinnum með viti fremur en striti. Þetta á auðvitað alltaf við, ekki bara með tilliti til árangurs og heilsufars, heldur líka til að tryggja öryggi fólks. Þannig hefur oft komið fram í fréttum að flugáhafnir mega aðeins vinna í ákveðinn tíma án hvíldar af öryggisástæðum. Sama á við um vörubílstjóra og kannski fleiri stéttir þar sem telja má að einbeitingarskortur vegna þreytu skapi alvarlega slysahættu. Umferðarráð mælir líka með því í auglýsingum að bílstjórar stöðvi ökutækið og leggi sig um stund, ef á þá sækir syfja. Kannski má segja að það sé ekki bara heilsufarslegt atriði heldur líka öryggiatriði fyrir okkur öll að hlusta eftir kalli líkamans á hvíld. Lokaorð Mig langar að enda þetta greinarkorn á ljóðrænni hugleiðingu, sem byggir á þeirri bernskuminningu sem greinin byrja á: Sendill fjárhundurinn okkarliggur oft með höfuðið fram á lappirnarog blundar á daginn. Á heitum sumardegikúra ærnar með lömbin sínog nota rofabörðin í heiðinni sem sólhlíf. Kýrnar jórtra makindalega í haganumog hestarnir fleygja sér kylliflatirmeð fæturna út til hliðar. Fólkinu sem er við heyskap á engjunumer færður matur í hádeginu. Að loknum málsverðileggjast allir í mjúkan flekkinn.Karlar draga derhúfur fyrir andlitog konur slæður. Mannskepnan væri aumust allraef hún hvíldi sig ekki eins og dýrin,heldur stritaði án afláts,vitandi að þrekið dvínarog hverfur að lokum. Höfundur er sálfræðingur. Heimildir: 1) Svefnsetrið sótt í feb. 2026: https://svefnsetrid.ru.is/category/almennt-um-svefn/ 2) Walker, Matthew. Why We Sleep. Penguin Books. 2018. 3) Cajochen, C. Og fl. Ultradian sleep cycles: Frequency duration, and associations with individual and environmental factors- A retrospective study. Sleep Health. Journal of the National Sleep Foundation 10(2024) s. 52-62. 4) Nathaniel Kleitman. Basic Rest-Activity Cycle- 22 Years Later. Sleep, Volume 5, Issue 4. September 1982. P. 311-317. 5) The 20 Minute Ultradian Healing Response. An Interview with Ernest Lawrence Rossi, Ph.D. Updated on January 2, 2000 & June 11, 2002. Ernestrossi.com 6) Stuðst m.a. við stundaskrá í Flataskóla, Garðabæ í feb. 2026 7) Frédéric Dutheil og fleiri: Effects of a Short Daytime Nap on the Cognitive Performance: A Systematic Review and Meta-Analysis. Int J Environ Res Public Health. 2021 Sep 28;18(19):10212. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar