Glódís Perla fékk dæmt á sig víti á Old Trafford en fagnaði sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2026 21:56 Glódís Perla Viggósdóttir fylgist með þegar liðsfélagi hennar reynir að bjarga á marklínunni eftir skalla Hönnu Lundkvist. Getty/Carl Recine Bayern München er í ágætum málum í átta liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir 3-2 sigur í fyrri leik sínum við Manchester United en leikurinn fór fram á Old Trafford.
Bæjarar komust yfir eftir aðeins tvær mínútur og svo aftur í seinni hálfleik en fengu á sig tvö jöfnunarmörk. Momoko Tanikawa tryggði liðinu sigur aftur á móti sigurinn sex mínútum fyrir leikslok. Danska landsliðskonan Pernille Harder skoraði tvö fyrstu mörkin en fyrra mark Manchester United kom úr vítaspyrnu sem var dæmd á íslenska landsliðsfyrirliðann Glódísi Perlu Viggósdóttur. Pernille Harder skoraði fyrsta mark leiksins á 2. mínútu eftir stoðsendingu frá Arianna Caruso. Glódís Perla fékk boltann í höndina í vítateignum og dómarinn dæmdi á punktinn. Maya Le Tissier tók vítið og jafnaði í 1-1 á 24. mínútu. Þannig var staðan þar til á 71. mínútu þegar Harder var aftur á ferðinni en núna eftir stoðsendingu frá Momoko Tanikawa. United-konur voru ekki hættar og Hanna Lundkvist jafnaði metin með skalla eftir stoðsendingu Le Tissier úr hornspyrnu. Tanikawa átti lokaorðið á 84. mínútu eftir stoðsendingu frá Franzisku Kett. Mikilvægur sigur fyrir Glódísi Perlu og félaga sem eru einu skrefi nær undanúrslitunum. Barcelona er í frábærum málum eftir 6-2 útisigur á Real Madrid í einvígi erkifjendanna í öðrum leik í átta liða úrslitum keppninnar. Barcelona á seinni leikinn á heimavelli. Ewa Pajor skoraði tvö mörk fyrir Barcelona en hin mörkin skoruðu Esmee Brugts, Irene Paredes, Vicky López og Alexia Putellas.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Sjá meira