Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Kristján Már Unnarsson skrifar 26. mars 2026 07:47 Slakað á í hvíldarrými áhafna uppi í rjáfri Boeing 777-þotu Air Atlanta. Fyrir neðan er farþegarýmið. Egill Aðalsteinsson Risaþotum af gerðinni Boeing 777 í flota Air Atlanta fjölgar upp í sex á árinu en þær eru núna stærstu flugvélar heims í fjöldaframleiðslu. Svo stórar eru þær að um borð er að finna leyniklefa uppi í rjáfri fyrir áhafnir sem farþegar vita almennt ekki um.
Í fréttum Sýnar var haldið til Jedda í Sádi-Arabíu en þar gerir Air Atlanta út hluta flugflota síns. Fyrstu breiðþoturnar af gerðinni Boeing 777 tók félagið í þjónustu sína fyrir þremur árum. Þær eru tveggja hreyfla og hafa núna leyst af eldri fjögurra hreyfla Boeing 747-þotur félagsins í farþegafluginu. Boeing 777-200 þota Air Atlanta á flugvellinum í Jedda. Flugvélarnar eru merktar Saudia-flugfélaginu, kaupanda þjónustunnar.Egill Aðalsteinsson En Atlanta er einnig byrjað að taka þreföldu sjöurnar í notkun í vöruflugi. Forstjórinn Baldvin Már Hermannsson segir þetta lið í heildarendurnýjun á flugflota félagsins. „Sú vinna hefur bara gengið vel. Við erum komin með fjórar 777-farþegavélar og erum að vinna núna statt og stöðugt í því að fjölga 777-fraktvélunum. Núna í sumar mun ein viðbótarvél bætast við, núna í maí eða júnímánuði, geri ég fastlega ráð fyrir. Þá eru „triple seven“ vélarnar á ansi skömmum tíma orðnar sex, sem er mjög ánægjulegt,“ segir Baldvin. Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta.Ívar Arnarsson Við upptökur á þáttunum um Flugþjóðina fengum við að kynnast Boeing 777-þotum Atlanta en þær taka allt að 490 farþega. Þær hafa mikið flugdrægi og eru oft notaðar á tíu til fimmtán klukkustunda flugleggjum. Lengstu flugin kalla á áhafnahvíld meðan á flugi stendur. Flugvélin geymir einnig lítið leyndarmál. Á bak við luktar dyr í farþegarýminu er að finna stiga sem liggur upp í rjáfur. Þetta má sjá hér í frétt Sýnar: Fjallað er um Atlanta-flugfélagið í átjánda þætti Flugþjóðarinnar. Stofnendurnir Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir lýsa uppbyggingu félagsins. Forstjórinn Baldvin Már Hermannsson útskýrir muninn á Air Atlanta og öðrum flugfélögum. Hér má sjá tíu mínútna kafla úr þættinum: Áskrifendur geta séð þáttinn um Atlanta-flugfélagið í heild sem og alla nítján þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Air Atlanta Boeing Fréttir af flugi Sádi-Arabía Tengdar fréttir Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims. 1. mars 2026 07:47 „Ég vissi það þó að innkoman yrði að vera meiri en útgjöldin“ Einn helsti brautryðjandi flugútrásar Íslendinga, Arngrímur Jóhannsson, segir galdurinn að góðum árangri ekki flókinn; innkoman verði að vera meiri en útgjöldin. Í þættinum Flugþjóðin Stöð 2 í kvöld var fjallað um alþjóðaútrás Íslendinga í fluginu í gegnum tíðina. 18. mars 2025 21:42 Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra. 18. júlí 2024 21:21 Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira
Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims. 1. mars 2026 07:47
„Ég vissi það þó að innkoman yrði að vera meiri en útgjöldin“ Einn helsti brautryðjandi flugútrásar Íslendinga, Arngrímur Jóhannsson, segir galdurinn að góðum árangri ekki flókinn; innkoman verði að vera meiri en útgjöldin. Í þættinum Flugþjóðin Stöð 2 í kvöld var fjallað um alþjóðaútrás Íslendinga í fluginu í gegnum tíðina. 18. mars 2025 21:42
Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra. 18. júlí 2024 21:21
Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42